Beint í efni

Sundlaugamenning á skrá UNESCO

Málsnúmer 2312033

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

53. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar styður tilnefningu sundlaugamenningar til UNESCO á lista þeirra yfir óáþreifanlegan menningararf. Stuðningsyfirlýsing nefndarinnar er meðfylgjandi.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

24. fundur

ÍTG samþykkir að styðja við umsókn um að koma sundlaugamenningu Íslendinga á menningarminjaskrá UNESCO. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa var falið að fylgja málinu eftir í samstarfi við menningarfulltrúa bæjarins með stuttum texta.
Fyrsta sundlaugin í Garðabæ var sett upp árið 1968 við Barnaskólann í Silfurtúni sem í dag heitir Flataskóli. Sú sundlaug var síðan færð og sett við Íþróttahúsið Ásgarð við vígslu þess árið 1974. Það var sundlaugardúkur sem var notaður fyrst á landsmóti ungmennafélaganna á Laugarvatni 1965, svo á landsmóti UMFÍ á Eiðum 1968 áður en "pokinn" var fluttur í Garðahrepp. Ný sundlaug var vígð í Ásgarði árið 1989 og hún síðan endurbætt 2019. Í dag eru tvær almenningssundlaugar í Garðabæ, í Ásgarði og á Álftanesi sem var vígð 1988 og síðan endurgerð og vígð 2008. Í Álftaneslaug er stór rennibraut og öldulaug auk pottasvæðis. Þeim til viðbótar eru tvær innisundlaugar í Mýrinni og við Sjálandsskóla sem notaðar eru til sundkennslu, vatnsleikfimi, flotmeðferðar og æfinga Í 3. áfanga Urriðaholtsskóla er gert ráð fyrir innisundlaug og pottasvæði sem verður þá sú fimmta í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

47.(2100). fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umsagnar íþrótta- og tómstundaráðs og menningar- og safnanefndar.