47.(2100). fundur
47.(2100). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
12.12.2023
Kl. 08:00 - 09:20
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Hulda Hauksdóttir - deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Málefni Strætó bs.
Á fund bæjaráðs kom Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs, og fór yfir málefni Strætó bs, nýtt leiðanet og leiðakerfi í Garðabæ.
Fylgiskjöl
02
Vetrarbraut 1A-Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Veitum ohf. kt. 501213-1870, leyfi til að byggja dreifistöð raforku á lóðinni við Vetrarbraut 1A.
03
Ásgarður Garðaskóli - Umsókn um byggingarleyfi. (Kennslustofur B-C)
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að staðsetja færanlegar kennslustofur á lóð Garðaskóla.
04
Ásgarður Garðaskóli - Umsókn um byggingarleyfi. (Kennslustofur F-G)
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að staðsetja færanlegar kennslustofur á lóð Garðaskóla.
05
Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning fyrir árið 2022, dags. 30.11.23.
Lagt fram.
06
Erindi Kvennaathvarfsins um rekstrarstyrk fyrir árið 2024, dags. 04.12.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.
07
Bréf menningar- og viðskiptaráðuneytisins varðandi sundlaugamenningu á skrá UNESCO, dags. 04.11.23.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umsagnar íþrótta- og tómstundaráðs og menningar- og safnanefndar.
08
Samningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands.
Drög að samningi rædd. Málinu frestað til næsta fundar.
09
Bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áramótabrennu í Garðabæ 2023, dags. 30.11.23.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi UMF-Stjörnunnar um að annast áramótabrennu og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
10
Bréf Eslöv varðandi vinabæjamót sumarið 2024, dags. 25.10.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.