Samningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið um starfsemi Hönnunarsafns Íslands.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (933). fundur
Lagður fram til afgreiðslu samningur menningar- og viðskiptaráðuneytis við Garðabæ um ráðstöfun styrktar-/rekstrarframlags vegna starfsemi Hönnunarsafn Íslands 2023 ? 2024.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir samningnum og lagði til að samningurinn verði samþykktur. Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun.
„Hlutfallslegt framlag Garðabæjar hefur aukist verulega frá stofnun safnsins. Á yfirstandandi ári nema framlög Garðabæjar til safnsins um 76 m.kr. samanborið við 20 m.kr. framlag ríkisins til rekstrar.
Í ljósi þessarar stöðu er nauðsynlegt að langvarandi viðræður við menningar- og viðskiptaráðuneytið um málefni safnsins verði endanlega leiddar til lykta á næsta ári. Sérstaklega á það við um varðveislu og geymslu menningarverðmæta úr hönnunarsögu Íslands. Huga þarf að úrræðum til að bæta húsakost safnsins þannig að hann uppfylli kröfur um trygga og örugga varðveislu menningarminja þjóðarinnar. Eðlilegt er að menningar og viðskiptaráðuneytið beri ábyrgð á úrlausn þessara mála.
Bæjarstjórn Garðabæjar leggur áherslu á að tryggja bæði varðveislu safnakosts og það blómlega starf sem nú fer fram á vegum Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ.
Jafnframt er minnt á fyrirliggjandi yfirlýsingu ríkisins um stofnframlag vegna húsnæðis safnsins.“
Baldur Ólafur Svavarsson, tók til máls og lýsti yfir stuðningi við framlagða bókun.
Bókun bæjarstjóra samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um starfsemi Hönnunarsafns Íslands. Samningurinn gildir til frá 1. janúar 2023 til 31. desember 2024.
Bæjarráð Garðabæjar
02
47.(2100). fundur
Drög að samningi rædd. Málinu frestað til næsta fundar.