Beint í efni

45. fundur

11.01.2023
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

45. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

11.01.2023

Kl. 16:30 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
  • Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2211268

01

Starfssemi og framtíðarsýn Bókasafns Garðabæjar

Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar segir frá starfssemi safnsins sem er á þremur stöðum í Garðabæ; á Garðatorgi 7, Urriðaholti og Álftanesi. Starfssemin snýst um útlán, viðburði, móttöku skólahópa, sögustundir, auk skráningar, plöstunar og umhirðu bóka og almenna þjónustu við gesti. Vínilprentari, saumavél og þrívíddarprentari eru meðal nýjunga og í takt við það sem samtímabókasöfn bjóða uppá hérlendis og erlendis. Rætt um húsnæði bókasafnsins og þróun sem hefur orðið í söfnum í nágrannasveitarfélögum. Rætt um Urriðaholtssafn, húsnæðið og starfsmannamál, sjá viðhengi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102116

02

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2023

Fyrsta umræða um val á bæjarlistamanni.

Málsnúmer 2201263

03

Hvatningarsjóður ungra hönnuða og listamanna

Rætt um að auglýsing um umsóknir í hvatningarsjóð ungra hönnuða og listamanna í Garðabæ verði birt en afhending styrkja fer fram í lok maí.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2301150

04

Kynning á menningardagskrá vetur/vor 23

Farið yfir helstu liði menningardagskrár sem borin var á heimilin í Garðabæ þann 11. janúar og er aðgengileg í þjónustuveri og í menningarstofnunum bæjarins. Dagskráin spannar viðburði og sýningar frá janúar til lok maí í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, tónleikaröðina Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar og margmiðlunarsýninguna Aftur til Hofsstaða á Garðatorgi 7.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2301152

05

Vetrarhátíð 2023

Drög að dagskrá

Dagskrá Safnanætur og Sundlauganætur kynnt.

Safnanótt í Garðabæ

Föstudagur 3. febrúar

17-22



Margmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða

Garðatorgi 7

17:00

Sýningaropnun. Aftur til Hofsstaða spannar sögu Garðabæjar allt frá landnámi til okkar daga. Sýningin er hönnuð af Gagarín og tengist fornleifarannsóknum á Hofsstöðum við Kirkjulund.

Hringur Hafsteinsson höfundur sýningarinnar kynnir og þjóðfræðingur leiðbeinir gestum.



Bókasafn Garðabæjar

Kl. 18-20 Hljóðfærasmiðja með Elínu Helenu Evertsdóttur. Búum til hljóðfæri úr endurunnu efni

Kl. 18:30 Barnakór ?.skóla

Kl. 19-21 Ljóðasjoppa

Kl. 21 Rebekka Blöndal jazzsöngkona skemmtir með seyðandi tónum



Hönnunarsafn Íslands

Kl. 18-19:30 Hönnunarsmiðja fyrir alla fjölskylduna með hönnuðunum Auði Ösp og Kristínu Maríu

Kl. 18-20 Ada Stanczak keramikhönnuður að störfum í vinnustofunni og ljúf tónlist í safnbúð.

Kl. 18-22 Sýningin Fallegustu bækur í heimi á Pallinum.



Kl. 20:00

Sýningaropnun

Hönnunarsafnið sem heimili er sýning á gripum úr safneign safnsins. Vegna leka í sýningarsal safnsins verður ekki hægt að opna sýninguna í heild sinni en þó verður hægt að skyggnast inn í ýmis herbergi heimilis sem býr yfir hlutum sem eru fengnir héðan og þaðan og því ræður fjölbreytileikinn för á heimilinu. Í stofunni munu í stað gripa söngkonan Jelena Ciric ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og Margréti Arnardóttur harmonikkuleikara koma sér fyrir og leika fjölbreytta tónlist fyrir gesti.





Sundlauganótt í Ásgarðslaug

Laugardaginn 4. febrúar

Kl. 18-22



Litadýrð og ljúfir tónar, diskókúla og stuð. Allt er mögulegt í Ásgarðslaug en góð stemning í fyrirrúmi.