Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða- auglýst eftir umsóknum
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
54. fundur
Auglýst hefur verið eftir umsóknum frá ungum listamönnum og hönnuðum. Þann 29. mars lýkur umsóknafresti og þá mun menningarfulltrúi í samstarfi við ungmennaráð fara yfir umsóknir. Umsögn ungmennaráðs fer að því loknu fyrir menningar- og safnanefnd.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
48. fundur
Menningarfulltrúa falið að funda með ungmennaráði og leggja tillögur um úthlutun fram á næsta fundi menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
45. fundur
Rætt um að auglýsing um umsóknir í hvatningarsjóð ungra hönnuða og listamanna í Garðabæ verði birt en afhending styrkja fer fram í lok maí.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
39. fundur
Bæjarstjórn samþykkti þann 3. mars sl. tillögu nefndarinnar að breytingu á reglum um úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna en breytingin fólst í því að nú geta ungir hönnuðir einnig sótt um styrk úr sjóðnum auk þess sem ungmennaráð Garðabæjar kemur að umfjöllun um umsóknir sem berast áður en til afgreiðslu menningar- og safnanefndar kemur.
Menningarfulltrúi mun nú auglýsa eftir umsóknum um úthlutun úr Hvatningarsjóð ungra hönnuða og listamanna og er umsóknarfrestur til 29. apríl nk.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
4. (900). fundur
Gunnar Valur Gíslason, gerði nánari grein fyrir reglum um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuðu en um er að ræða endurskoðun á eldri reglum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuða.
Bæjarráð Garðabæjar
06
7. (2014). fundur
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
07
38. fundur
Fyrir fundinum lá að nýju tillaga menningarfulltrúa að endurskoðuðum reglum um Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn í Garðabæ þannig að reglurnar nái einnig til ungra hönnuða. Menningarfulltrúi hefur kynnt tillöguna fyrir forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands og ungmennaráði bæjarins og fengið jákvæð viðbrögð þessara aðila.
Menningar- og safnanefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu menningarfulltrúa að reglum um Hvatningarsjóð fyrir unga hönnuði og listamenn og vísar reglunum til afgreiðslu bæjarráðs.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
08
37. fundur
Fyrir fundinum lá tillaga menningarfulltrúa að endurskoðun regla um Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn í Garðabæ þannig að reglurnar nái einnig til ungra hönnuða.
Menningarfulltrúa var falið að kynna tillöguna fyrir forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands og ungmennaráði bæjarins. Í kjölfarið verður tillagan tekin til afgreiðslu í menningar- og safnanefnd.