Beint í efni

4. (900). fundur

03.03.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

4. (900). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.03.2022

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. febrúar 2022 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2202034F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 22/2 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Gunnar Einarsson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Ingvar Arnarson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni og 14. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Ingvar Arnarson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni, 6. og 7. tl., afgreiðslur skipulagsnefndar varðandi tillögur að skipulagsáætlunum fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum og 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Gunnar Einarsson, ræddi 14. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar og 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Ingvar Arnarson, ræddi 13. tl., niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2202041F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 1/3 ´22.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., bréf Sigríðar Gunnarsdóttur varðandi foreldragreiðslur.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., bréf Sigríðar Gunnarsdóttur varðandi foreldragreiðslur.

Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl., opnun tilboða vegna þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar og 16. tl., bréf Persónuverndar varðandi úttekt á notkun Garðabæjar á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 11. tl., erindi Listasetursins varðandi stofnun tónlistarskóla í Urriðaholti.

Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., bréf Sigríðar Gunnarsdóttur varðandi foreldragreiðslur og 11. tl., erindi Listasetursins varðandi stofnun tónlistarskóla í Urriðaholti.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. tl., erindi Listasetursins varðandi stofnun tónlistarskóla í Urriðaholti.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., bréf Sigríðar Gunnarsdóttur varðandi foreldragreiðslur og 11. tl., erindi Listasetursins varðandi stofnun tónlistarskóla í Urriðaholti.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., erindi Listasetursins varðandi stofnun tónlistarskóla í Urriðaholti.

Gunnar Einarsson, ræddi 16. tl., bréf Persónuverndar varðandi úttekt á notkun Garðabæjar á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi

Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2202023F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/2 ´22.

Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð, 10. tl., breytt skipulag barnaverndar og 11. tl., mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs í tilefni umræðu um móttöku flóttafólks frá Úkraínu og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn staðfestir vilja Garðabæjar til þess að taka þátt í verkefninu og taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Hafinn er undirbúningur fyrir móttöku flóttafólks að hálfu ríkisins og mörg sveitarfélög þegar látið vita af vilja sínum til þátttöku í verkefninu. Garðabær er ríkt samfélag og það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að styðja við fólk í neyð líkt og nú ríkir í Úkraínu.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Ingvar Arnarson.

Gunnar Einarsson, lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Sara Dögg Svanhildadóttir tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin er framlögð.

Málsnúmer 2202017F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 16/2 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2202025F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 17/2 ´22.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni og 2. og 3. tl., tillögur að skipulagsáætlunum fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.

Sigurður Guðmundsson, ræddi sömu mál og gerði grein fyrir umræðu í svæðisskipulagsnefnd um legu svokallaðs ofanbyggðarvegar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi sömu mál og legu ofanbyggðarvegar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, sömu mál og legu ofanbyggðarvegar.

Gunnar Einarsson, ræddi sömu mál og legu ofanbyggðarvegar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201027F

06

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 16/2 ´22.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., stöðuna í grunnskólunum vegna áhrifa af Covid-19, 3. tl., skólastefnu Garðabæjar 2020, 4. tl. mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa, 5. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040 og 6. tl., kynningu á nýjum starfsmönnum á fræðslu ? menningarsviði

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2111040F

07

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 26/11 ´21.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1. tl., stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2019-2023.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2019-2023.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203020

08

Fundargerð 36. eigendafundar Sorpu bs. frá 24/1 ´22.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., heildarlausn í úrgangsmálum.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., heildarlausn í úrgangsmálum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201281

09

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 23/2 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203017

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar SSK frá 25/2 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2110161

11

Stöðumat á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018-2025 - Viðauki

Gunnar Einarsson gerði grein fyrir stöðumati á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025 og viðauka sem varðar málið.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðauka við húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025.

Málsnúmer 2201263

12

Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða - Reglur um hvatningarsjóð.

Gunnar Valur Gíslason, gerði nánari grein fyrir reglum um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuðu en um er að ræða endurskoðun á eldri reglum.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuða.