Beint í efni

Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/2 ´22.

Málsnúmer 2202023F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

4. (900). fundur

Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð, 10. tl., breytt skipulag barnaverndar og 11. tl., mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs í tilefni umræðu um móttöku flóttafólks frá Úkraínu og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn staðfestir vilja Garðabæjar til þess að taka þátt í verkefninu og taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Hafinn er undirbúningur fyrir móttöku flóttafólks að hálfu ríkisins og mörg sveitarfélög þegar látið vita af vilja sínum til þátttöku í verkefninu. Garðabær er ríkt samfélag og það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að styðja við fólk í neyð líkt og nú ríkir í Úkraínu.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Ingvar Arnarson.

Gunnar Einarsson, lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Sara Dögg Svanhildadóttir tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin er framlögð.