7. (2014). fundur
7. (2014). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
22.02.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2201528
01
Brekkuskógar 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bessastaðasókn, kt. 611087-1529, leyfi til að breyta innra skipulagi og byggja við núverandi safnaðarheimili að Brekkuskógum 1.
Málsnúmer 2201287
02
Iðnbúð 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hagbyggi fasteignum ehf., kt. 650116-0700, leyfi til að breyta notkun rýma í núverandi húsnæði að Iðnbúð 2.
Málsnúmer 2202261
03
Urriðaholtsstræti 2 (verslun)- Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsinu í hverfinu ehf., kt. 571218-0380, leyfi til að breyta notkun á 1. hæð í verslunar- og þjónustuhúsnæði að Urriðaholtsstræti 2.
Málsnúmer 2201327
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Kaldakur 5.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar um stækkun ytri byggingarreits lóðar einbýlishússins að Kaldakri 5. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Kaldakurs 3,4,6,7 og 8 og Krossakurs 4,6 og 8.
Málsnúmer 2110330
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Maríugötu 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að útfærsla bílgeymslu geri ráð fyrir einhalla þaki með gróðurþekju í stað miðjusetts mænisþaks með 15 gráðu halla við Maríugötu 7 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1912201
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal sérstaklega kynnt Golfklúbbnum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti hf. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Málsnúmer 2009538
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Tillagan skal sérstaklega kynnt Golfklúbbnum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti hf. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Málsnúmer 2104420
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Málsnúmer 2202207
09
Tillaga um breytingar á reglum um námsstyrki og námsleyfi starfsmanna.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á reglum um námsstyrki og námsleyfi starfsmanna.
Málsnúmer 2202202
10
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2022, dags. 11.02.22.
Bæjarráð samþykkir að veita UMF Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 2.025.383 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.
Málsnúmer 2202256
11
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði varðandi framlög til að samþætta þjónustu sveitarfélaga í þágu barna, dags. 14.02.22.
Lögð fram tilkynning frá Jöfnunarsjóði um framlög til sveitarfélaga til að mæta kostnaði vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna. Áætlað framlag til Garðabæjar nemur kr. 40.627.280.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2202282
12
Tilkynning frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi skilagrein starfshóps um legu Sundabrautar, dags. 15.02.22.
Málsnúmer 2201559
13
Niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.
Eftirfarandi tilboð bárust í verðkönnun um kaup og leigu á húseiningum fyrir leikskóla í Kauptúni.
Stólpi Gámar ehf.
Leiguverð kr. 2.300.000 á mánuði í 24 mánuði kr. 55.200.000
Kaupverð eftir 24 mánuði kr. 245.000.000
Samtals: kr. 300.200.000
Terra einingar ehf.
Leiguverð kr. 2.700.000 á mánuði í 24 mánuði kr. 64.800.000
Kaupverð eftir 24 mánuði kr. 202.334.000
Samtals: kr. 267.134.000
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að fela bæjarstjóra að leita samninga við Terra einingar ehf. um leigu á húseiningum fyrir leikskóla í Kauptúni.
Sara Dögg Svanhildardóttir, sat hjá við afgreiðslu málsins og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Enn og aftur stendur til að taka á leigu færanlegar einingar undir leikskóla og aftur ætlar meirihlutinn að viðhafa þau vinnubrögð að taka umdeilda ákvörðun og leita verðtilboða í stað þess að fylgja lögum um opinber innkaup og bjóða út kaup á þjónustu og möguleg kaup á einingum en um það er kveðið sérstaklega í leigutilboðum. Og stunda þar með óábyrga fjármálastjórn.
Undirrituð mótmælir slíkum vinnubrögðum og endurtekur þá afstöðu sem fram kom í bókun sem lögð var fyrir bæjarráð 17. ágúst 2021 vegna kaupa sem fram fóru án útboðs á leigu færanlegra eininga án en þar segir vegna þeirrar ákvörðunar og svara meirihlutans í bókun frá 6. júlí sama ár:
,,Framkomin svör eru í hróplegu ósamræmi við bókun meirihlutans frá 6. júlí sl. Þar er fullyrt að leiga á “fasteign eins og þeirri sem hér um ræðir? sé undanskilin gildissvið laga um opinber innkaup. Nú er ljóst að það er rangt, því hér er ekki um að ræða “fasteign? í skilningi laga heldur lausafé, þ.e vöru. Lög um opinber innkaup eiga því við og skýr útboðsskylda hvílir á Garðabæ. Í 3. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup er skýrt kveðið á um þá samninga sem lögin taka til, m.a. vörusamninga sem hafa að markmiði kaup eða leigu, með eða án kauprétti. Útilokað er að 39. gr. um samningskaup án útboðsauglýsinga eigi hér við.?
Undirrituð óskar eftir því að minnisblað sem Garðabær lét vinna vegna fyrirhugaðra kaupa nú verði gert opinbert sem eðlilegt er og enn fremur fer undirrituð fram á að lagt verði mat á lögmæti þessa erindis frá óháðum aðila.“
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að annast rekstur á leikskólanum samkvæmt samningi við Garðabæ.
Málsnúmer 2108312
14
Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.
Berg verktakar ehf. kr. 235.331.300
D.Ing - verk ehf. kr. 237.774.900
Gleipnir verktakar ehf. kr. 241.000.000
Háfell ehf. kr. 229.897.300
Klapparverk ehf. kr. 237.603.900
Stálborg ehf/Ljósþing ehf. kr. 256.144.500
Stéttafélagið ehf. kr. 237.401.500
Verktækni ehf. kr. 240.038.900
Kostnaðaráætlun kr. 280.703.030
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Háfells ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2202318
15
Beiðni um minnisblað um stöðu innleiðingar Garðabæjar á lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta taka saman minnisblað um stöðu innleiðingar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201263
16
Reglur um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuða.
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.