Beint í efni

Kaldakur 5 - ósk um deiliskipulagsbreytingu.

Málsnúmer 2201327

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

5. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akrahverfis sem nær til lóðarinnar Kaldakurs 5 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits einbýlishússins að Kaldakri 5 til vesturs fyrir sólskála.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akrahverfis.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

4. (900). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar um stækkun ytri byggingarreits lóðar einbýlishússins að Kaldakri 5. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Kaldakurs 3,4,6,7 og 8 og Krossakurs 4,6 og 8. (Mál nr. 2201327)

Bæjarráð Garðabæjar

04

7. (2014). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar um stækkun ytri byggingarreits lóðar einbýlishússins að Kaldakri 5. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Kaldakurs 3,4,6,7 og 8 og Krossakurs 4,6 og 8.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akrahverfis sem gerir ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits einbýlishússins að Kaldakri 5 til vesturs fyrir sólskála.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akrahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Kaldakur 3,4,6,7 og 8 sem og Krossakurs 4,6 og 8.