2. fundur
2. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
01.04.2022
Kl. 14:00 - 14:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Arnar Hannes Halldórsson
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2202010
01
Krókur. Breyting á deiliskipulagi
Löfð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að klasi við Svanamýri 2 - 16 færist lítillega í vesturátt og endaraðhús sem á núverandi deiliskipulagi er nr. 8 flyst yfir í norðvestur horn klasa Svanamýri 1 - 15 og verður að húsi nr. 17.
Í skipulaginu er raðhúsum fjölgað um eitt.
Við klasa Svanamýri 17 - 29 í núverandi deiliskipulagi er bætt við einu raðhúsi í norðvestur
enda klasa. Það hús verður nr. 33.
Gangstíg og leiksvæði er hnikað til á svæðinu við þessar breytingar.
Skipulasstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Króks í samræmi við 2. mgr.43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Felld niður grenndarkynning sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og landeiganda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2203432
02
Hnoðraholt norður. Breyting á deiliskipulagi. Dælustöð.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til dælustöðvarlóðar við Vetrarbraut á móts við gatnamót við Hnoðraholtsbraut. Breytingin gerir ráð fyrir breyttri lögun lóðar og byggingarreits en ráðgjafar hjá Eflu sem vinna að hönun dælustöðvarinnar hafa óskað eftir þessari breytingu. Einnig er gert ráð fyrir að heiti lóðar breytist og verði Vetrarbraut 38.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Felld niður grenndarkynning sbr.3. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og landeiganda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2112154
03
Sunnuflöt 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Sunnuflöt 3 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 1 m til suðurs vegna stækkunar svala á efri hæð. Breidd stækkað byggingarreits er um 5 m.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2201327
04
Kaldakur 5 - Ósk um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akrahverfis sem nær til lóðarinnar Kaldakurs 5 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits einbýlishússins að Kaldakri 5 til vesturs fyrir sólskála.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akrahverfis.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2108588
05
Marargrund 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda sem nær til lóðarinnar Marargrund 14 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílageymslu á kjallara í austurhorni lóðar.
Erindi barst frá eigendum Bólstaðs sem gera ekki athugasemd við tillöguna en óska eftir því að girðing verði á lóðarmörkum í framhaldi af bílageymslu. Girðing á lóðarmörkum er samkomulagsatriði milli lóðarhafa og kallar ekki á deiliskipulagsbreytingu á meðan hún er ekki hærri en 1,8 m.
Tillagan skoðast samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Ása-og Grunda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2108327
06
Hólmatún 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að deiliskikpulagsbreytingu Deildar og Landakots (Deiliskipulag í Bessastaðahreppi) að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall raðhúslóða hækki á lóðum númer 8 og 10 við Hólmatún. Deiliskipulag gerir ráð fyrir því að hámarksnýtingarhlutfall raðhúsa sé 0,40. Eftir breytingu er nýtingarhlutfall heimilað sem hér segir: Nr. 8 verður 0,57 , nr.10 verður 0,56.
Engar athugsemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Deildar og Landakots (Deiliskipulag í Bessastaðahreppi).
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2111302
07
Þrastarlundur 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiiskipulags Lunda sem nær til lóðarinnar Þrastarlundur 1 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til austurs um 1.65 m á 7,5 m kafla.
Engar athuganefndir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Lunda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2201564
08
Smáraflöt 12 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að breytingum á húsinu Smáraflöt 12.
Bílskúr sem stendur við lóðarmörk er samkvæmt teikningu 1,6 m lengri en núverandi bygging og ekki í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu ef útfærsla verður með þessum hætti.
Málsnúmer 2112212
09
Grímsgata 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að hluti inndreginniar efstu hæðar nær út að þakbrún. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu á 5.hæð varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2011212
10
Maríugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn hvort heimilað verði að nota þakpappa sem ystu klæðningu í þaki.
Með vísan í aðrar sambærilegar afgreiðslur gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað notkun þakpappa varðar á meðan litur er í gráskala. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1806425
11
Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir að gluggalaust geymslurými inn af bílskúr fari lítillega út fyrir byggingarreit neðanjarðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað notkun þakpappa varðar á meðan litur er í gráskala. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2203342
12
Holtás 7 Garðhýsi - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits í norðvesturhorni lóðar fyrir garðhýsi sem verður 15 m2 að flatarmáli. Hluti garðhýsis er innan núverandi byggingarreits.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Holtáss nr. 5, 6,8,9 og 10.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2203300
13
Lindarflöt 52 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem nær til einbýlishúslóðarinnar Lindarflöt 52 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðvesturs fyrir garðskála sem byggður yrði við núverandi hús.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Lindarflatar nr 49, 50, 51 og Hagaflatar 2 og Garðaflöt 27, 29. 31.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2110364
14
Lindarflöt 44 viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Grenndarkynningu lauk 9. mars, ein ábending barst
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Lindarflöt 44 að lokinni grenndarkynningu. Tillaga gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Lindarflöt 44. Tillagan gerir einnig ráð fyrir stækkun bílageymslu á lóðarmörkum og breytingu á notkun hennar að hluta fyrir íverurými.Erindi barst frá Hagaflöt 8 sem gera ekki athugasemd við tillöguna, engar aðrar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.