Hnoðraholt norður. Breyting á deiliskipulagi. Dælustöð.
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Byggingarreit dælustöðvar á lóð sem merkt er við Vetrarbraut nr 2 er snúið 90° og númeri er breytt, verður Vetrarbraut nr. 38.
Skilmálar fyrir lóðina eru óbreyttir að öðru leyti.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytignu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður. Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til dælustöðvarlóðar við Vetrarbraut á móts við gatnamót við Hnoðraholtsbraut. Breytingin gerir ráð fyrir breyttri lögun lóðar og byggingarreits en ráðgjafar hjá Eflu sem vinna að hönun dælustöðvarinnar hafa óskað eftir þessari breytingu. Einnig er gert ráð fyrir að heiti lóðar breytist og verði Vetrarbraut 38.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Felld niður grenndarkynning sbr.3. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og landeiganda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.