Beint í efni

Marargrund 14 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2108588

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (2025). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Einar Erni Reynissyni, kt. 080478-4299, leyfi til að byggja við núverandi hús að Marargrund 14.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

5. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

2. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda sem nær til lóðarinnar Marargrund 14 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílageymslu á kjallara í austurhorni lóðar.
Erindi barst frá eigendum Bólstaðs sem gera ekki athugasemd við tillöguna en óska eftir því að girðing verði á lóðarmörkum í framhaldi af bílageymslu. Girðing á lóðarmörkum er samkomulagsatriði milli lóðarhafa og kallar ekki á deiliskipulagsbreytingu á meðan hún er ekki hærri en 1,8 m.
Tillagan skoðast samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Ása-og Grunda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

13. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir bílageymslu á kjallara við lóðarmörk í austurhorni lóðar.
Tillaga kallar á deiliskipulagsbreytingu þar sem að mannvirkið fer út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri metur deiliskipulagsbreytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Marargrundar 11, 12,13,15 og 16 sem og Bólstaðs.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.