13. fundur
13. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
22.12.2021
Kl. 11:00 - 12:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2111453
01
Norðurtún 7 - Tilkynning um framkvæmdir
Lögð fram greinargerð lóðarhafa um útfærslu girðingar á lóðarmörkum að götu.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar skulu girðingar á lóðarmörkum ekki vera hærri en 1,2 m að götu. Ef lóðarhafi vill reisa girðingu eða vegg sem er hærri en samþykktin gerir ráð fyrir skal sækja um deiliskipulagsbreytingu og leggja fram uppdrætti sem sýna útfærslu girðingarinnar.
Málsnúmer 2102344
02
Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir þar sem útfærslu lóðar hefur verið breytt frá samþykktu byggingarleyfi.
Felldur hefur verið út stoðveggur og skjólveggur staðsettur ofan á hann sem gerir það að verkum að heildar hæð veggjar verður næstum 4 metrar.
Skipulagsstjóri bendir á að útfærslan þurfi að eiga sér stoð í deiliskipulagi.
Vísað til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2108588
03
Marargrund 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir bílageymslu á kjallara við lóðarmörk í austurhorni lóðar.
Tillaga kallar á deiliskipulagsbreytingu þar sem að mannvirkið fer út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri metur deiliskipulagsbreytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Marargrundar 11, 12,13,15 og 16 sem og Bólstaðs.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2102132
04
Stekkjarflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits að götu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1906181
05
Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 15 m2 í átt að opnu svæði. Fjarlægð stækkaðs byggingarreits að lóðarmörkum er 50 cm.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1909306
06
Smiðsbúð 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingum á húsnæðinu að Smiðsbúð 9 sem gerir ráð fyrir að íbúðum á efri hæð verði fjölgað úr 2 í 5 og neðri hæð verði skipt upp í alls 13 þjónusturými með aðgengi utanfrá. Gert er ráð fyrir leiksvæði á lóð.
Tillagan er í samræmi við ákvæði deiliskipulags þar sem heimilt er að hafa íbúðarrými á efri hæð. Minnt skal á að þjónusturými eru ekki ætluð til búsetu.
Málsnúmer 2112147
07
Lautargata 4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að falla frá ákvæði um íbúð á jarðhæð og í stað þess yrði íbúð bætt við á efstu hæð. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurnina.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar er svar við fyrirspurninni neikvætt.
Málsnúmer 2112148
08
Grímsgata 6 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að færa byggingarreit bílageymslu um 1,3 m vestur. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir og er ekki gerð athugsemd við útfærsluna.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað færslu byggingarreits bílageymslu varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2111349
09
Tjarnarflöt 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð er fram fyrirspurn um byggingu gróðurhúss utan byggingarreits á lóð sem er 18 m2 að grunnfleti. Staðsetning þess er nær lóðarmörkum en 3 m en samþykki eiganda aðliggjandi lóðar liggur fyrir.
Þar sem að gróðurhúsið er stærri en 15 m2 sem er heimilað flatarmál smáhýsa samkvæmt deiliskipulagi Flata metur skipulagsstjóri tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslagar nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Gera skal ráð fyrir byggingarreit fyrir gróðurhúsið.
Grenndarkynna skal eigendum Tjarnarflatar 5,6,8 og 9 sem og Móaflatar 6,8 og 10.
Málsnúmer 2110138
10
Markarflöt 57 - Deiliskipulagsbreyting
Grenndarkynningu lýkur 21.12.2021
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu.Tillagan gerir ráð fyrir fyrir stækkun byggingarreits að norðarverðu sem nemur 76 fermetrum. Lengd hans yrði 19 m en dýpt 4 m. Fjarlægð byggingarreitar að lóðarmörkum yrði 5 metrar í stað 9.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.