Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsögn um byggingarleyfi að Hraunhólum 5.

Málsnúmer 2102344

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2030). fundur

Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem fram kemur að nefndin telur að umsókn um byggingarleyfi vegna útfærslu lóðar og staðsetningar stoðveggja á lóðinni við Hraunhóla 5 falli innan skilmála deiliskipulags.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa Hraunhóla 5 að útfærslu lóðar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna eins og hún er útfærð á framlögðum teikningum enda eru stoðveggir í meira en 2 m frá lóðarmörkum eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á útfærslu lóðar sem er önnur en samþykktar byggingarleyfisteikningar gera ráð fyrir. Veggur hefur þegar verið byggður og er því um reyndarteikningar að ræða sem lagðar eru fram.
Skipulagsnefnd telur að samanlögð hæð stoðveggjar og skjólveggjar sé ekki í samræmi við ásýnd byggðar við Hraunhóla og Lynghóla en heildarhæð veggjar er um 4 metrar.
Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

13. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir þar sem útfærslu lóðar hefur verið breytt frá samþykktu byggingarleyfi.
Felldur hefur verið út stoðveggur og skjólveggur staðsettur ofan á hann sem gerir það að verkum að heildar hæð veggjar verður næstum 4 metrar.
Skipulagsstjóri bendir á að útfærslan þurfi að eiga sér stoð í deiliskipulagi.
Vísað til skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

5. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sýndur er lóðarfrágangur sem er ekki í samræmi við samþykkt byggingarleyfi. Norðurhluti lóðar er ekki stallaður eins og samþykkt var og er því ásýnd lóðarinnar að Lynghólum öðru vísi en til stóð.
Skipulagsstjóri óskar eftir rökstuddri skýringu á því af hverju lóðin hefur verið útfærð með öðrum hætti en byggingarleyfi var veitt fyrir.