Tjarnarflöt 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2111349
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð er fram fyrirspurn um byggingu gróðurhúss utan byggingarreits á lóð sem er 18 m2 að grunnfleti. Staðsetning þess er nær lóðarmörkum en 3 m en samþykki eiganda aðliggjandi lóðar liggur fyrir.
Þar sem að gróðurhúsið er stærri en 15 m2 sem er heimilað flatarmál smáhýsa samkvæmt deiliskipulagi Flata metur skipulagsstjóri tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslagar nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Gera skal ráð fyrir byggingarreit fyrir gróðurhúsið.
Grenndarkynna skal eigendum Tjarnarflatar 5,6,8 og 9 sem og Móaflatar 6,8 og 10.