Beint í efni

Lindarflöt 44 viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2110364

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

5. fundur

Grenndarkynningu lauk 9. mars, ein ábending barst

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

2. fundur

Grenndarkynningu lauk 9. mars, ein ábending barst

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Lindarflöt 44 að lokinni grenndarkynningu. Tillaga gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Lindarflöt 44. Tillagan gerir einnig ráð fyrir stækkun bílageymslu á lóðarmörkum og breytingu á notkun hennar að hluta fyrir íverurými.Erindi barst frá Hagaflöt 8 sem gera ekki athugasemd við tillöguna, engar aðrar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

2. (898). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Lindarflöt 44. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Lindarflatar 41, 42, 43, 45 og 46 og Hagaflatar 8 og 10. (Mál nr. 2110364)

Bæjarráð Garðabæjar

04

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Lindarflöt 44. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Lindarflatar 41, 42, 43, 45 og 46 og Hagaflatar 8 og 10.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Lindarflöt 44. Tillaga gerir einnig ráð fyrir stækkun bílageymslu á lóðarmörkum og breytingu á notkun hennar að hluta fyrir íverurými.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Lindarflatar 41,42,43,45 og 46 sem og Hagaflatar 8 og 10.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

13. fundur

Lögð fram fyrirspurn arkitekts fyrir hönd lóðarhafa hvort heimilað verði að stækka byggingarreit á baklóð vegna viðbyggingar sem verður í 1 metra fjarlægð frá lóðarmörkum og að lengja bílageymslu sem stendur við lóðarmörk um 2,9 metra úr 9 í 11,9.
Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.