Maríugata 13-15 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn hvort heimilað verði að nota þakpappa sem ystu klæðningu í þaki.
Með vísan í aðrar sambærilegar afgreiðslur gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað notkun þakpappa varðar á meðan litur er í gráskala. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
3. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir hækkun gólfkóta á bílgeymslu Maríugötu 15.
Hæð á bílgeymslu samkvæmt hæðarblaði er 74,85. Óskað er eftir að hækka bílgeymslu um 45 cm í kóta 75,3.
Rökin fyrir því að hækka skúrinn er hæð gólfkóta Maríugötu 15 og staðsetningu bílastæðis hreyfihamlaðra við aðalinngang. Tryggja þarf lágmarkshalla í bílastæði fatlaðra að aðalinngangi.
Álit gatnahönnuðar liggur fyrir og hann gerir ekki athugasemd við hækkun kóta um 45 cm.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hækkun á gólfkóta um 45 cm varðar (úr 74,85 mys í 75,3 mys)í bílageymslu Maríugötu 15. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
05
4. (1962). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 34 íbúðum að Maríugötu 13-15.