3. fundur
3. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
10.03.2021
Kl. 08:15 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2103068
01
Sunnuflöt 17 - dsk breyting
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir efri hæð stækki til suðurs um 85 cm. Ástæða umsóknarinnar er tillaga að útfærslu breytinga á einbýlishúsinu.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Sunnuflatar 15,18,19,20 og 22 sem og Markarflatar 16 og 18.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017.
Málsnúmer 2102296
02
Austurhraun 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu þar sem spurt er um hvort heimilað verði að stækka byggingarreit fyrir viðbyggingu á vesturhlið. Lagt fram erindi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem telur að rými sé nægjanlegt á milli byggingar og lóðarmarka til þess að slökkvilið hafi greiða aðkomu. Þó verði að fjarlægja tré sem eru við lóðarmörk á þessum stað.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipluagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Austurhrauns 5 og 9 og Miðhrauns 11. Samkomulag um að tré á nágrannalóð verði fjarlægð eða klippt þarf að liggja fyrir.
Gera skal ráð fyrir því að akstursleið milli húss og lóðarmarka sé greið.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017.
Málsnúmer 2102540
03
Kinnargata 26- breyting á þaki - deiliskipulag - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á þaki einbýlishússins að Kinnargötu 26. Spurt er hvort dúkur/pappi verði heimilaður sem ysta byggingarefni á þaki. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar á Víkurgötu 23 telur skipulagsstjóri að þakpappi getur vel verið í samræmi við markmið deiliskipulagsins um gott yfirbragð byggingar ef vandað er til útfærslunnar og að litur sé í gráskala. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis fyrir Kinnargötu 26 verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað þakpappa/þakdúk sem ysta byggingarefni varðar.
Málsnúmer 2101090
04
Kinnargata 47 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir hækkun gólfkóta. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og gatnahönnuðar.
Málsnúmer 2011212
05
Maríugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir hækkun gólfkóta á bílgeymslu Maríugötu 15.
Hæð á bílgeymslu samkvæmt hæðarblaði er 74,85. Óskað er eftir að hækka bílgeymslu um 45 cm í kóta 75,3.
Rökin fyrir því að hækka skúrinn er hæð gólfkóta Maríugötu 15 og staðsetningu bílastæðis hreyfihamlaðra við aðalinngang. Tryggja þarf lágmarkshalla í bílastæði fatlaðra að aðalinngangi.
Álit gatnahönnuðar liggur fyrir og hann gerir ekki athugasemd við hækkun kóta um 45 cm.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hækkun á gólfkóta um 45 cm varðar (úr 74,85 mys í 75,3 mys)í bílageymslu Maríugötu 15. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1911231
06
Víkurgata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyri byggingarreit fyrir útigeymslu á bak við stoðvegg að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 14, 18, 23 og 25 og Keldugötu 9 og 11.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017.