Kinnargata 26- breyting á þaki - deiliskipulag - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2102540
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á þaki einbýlishússins að Kinnargötu 26. Spurt er hvort dúkur/pappi verði heimilaður sem ysta byggingarefni á þaki. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar á Víkurgötu 23 telur skipulagsstjóri að þakpappi getur vel verið í samræmi við markmið deiliskipulagsins um gott yfirbragð byggingar ef vandað er til útfærslunnar og að litur sé í gráskala. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis fyrir Kinnargötu 26 verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað þakpappa/þakdúk sem ysta byggingarefni varðar.