Víkurgata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (1971). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039, leyfi til að byggja einbýlishús við Víkurgötu 16.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
4. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Lögð fram afrit af uppdráttum þar sem að allir þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytingartillöguna.
Í samræmi við 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er tímabil grenndarkynningar hér með stytt og tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
3. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyri byggingarreit fyrir útigeymslu á bak við stoðvegg að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 14, 18, 23 og 25 og Keldugötu 9 og 11.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017.