Beint í efni

Austurhraun 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2102296

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

5. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

3. fundur

Lögð fram fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu þar sem spurt er um hvort heimilað verði að stækka byggingarreit fyrir viðbyggingu á vesturhlið. Lagt fram erindi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem telur að rými sé nægjanlegt á milli byggingar og lóðarmarka til þess að slökkvilið hafi greiða aðkomu. Þó verði að fjarlægja tré sem eru við lóðarmörk á þessum stað.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipluagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Austurhrauns 5 og 9 og Miðhrauns 11. Samkomulag um að tré á nágrannalóð verði fjarlægð eða klippt þarf að liggja fyrir.
Gera skal ráð fyrir því að akstursleið milli húss og lóðarmarka sé greið.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

1. fundur

Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar. 4,5 m verða milli lóðarmarka og byggingar á þessum stað. Óskað er eftir því að umsækjandi skili inn umsögn Slökkviliðs höfðuborgarsvæðisins um tillöguna með tilliti til aðkomu slökkviliðs.