1. fundur
1. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
18.02.2021
Kl. 14:00 - 14:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2011288
01
GArðatorg 3 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Breyting á eign úr skrifstofu í íbúð breytir ekki kröfum varðandi bílastæði í gildandi deiliskipulagi. Skipulag byggingar gefur möguleika á því að aðkoma að íbúðinni verði frá Hrísmóum. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er unnt að breyta húsnúmeri eignarinnar úr Garðatorg 3 í Hrísmóa 2b enda inngangur þá Hrísmóamegin. Eigendur annarra eigna að Garðatorgi 3 og Hrísmóum 2a og 2b hafa með undirritun lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytta notkun eignarinnar. Að Hrísmóum 2 a eru íbúðareignir á 2.hæð með aðkomu frá Hrísmóum en þjónustuhúsnæði á 1.hæð með aðkomu frá Garðatorgi.
Að mati skipulagsstjóra kallar breytt notkun úr skrifstofu í íbúð ekki á deiliskipulagsferli og er því ekki gerð athugsemd við breytta notkun.
Málsnúmer 2101092
02
Asparlundur 19 - stækkun eignar baka til - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram umsögn arkitekts hússins sem leggst ekki gegn tillögunni á meðan að viðbyggingin er dregin inn frá húshlið og að samræmis verði gætt ef fleiri eigendur raðhússlengjunnar muni óska eftir sambærilegri breytinu.
Skipulagsstjóri vísar tillögu sem gerir ráð sömu stækkun byggingarreits fyrir öll hús raðhúslengunnar til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum raðhúslengjunnar sem og Þrastalundar 20, Asparlundar 9 og 10, Skógarlundar 11 og 13.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2102296
03
Austurhraun 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar. 4,5 m verða milli lóðarmarka og byggingar á þessum stað. Óskað er eftir því að umsækjandi skili inn umsögn Slökkviliðs höfðuborgarsvæðisins um tillöguna með tilliti til aðkomu slökkviliðs.
Málsnúmer 2101445
04
Kinnargata 92 - A og B rými og bílakjallari - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 2101527
05
Kinnargata 21 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Vísað til umsagnar deiliskipuagshöfundar.
Málsnúmer 2012166
06
Keldugata 14 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskikipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Keldugata 14 og gerir ráð fyrir því að bílageymslur geti verið lokaðar að hluta. Tillögu vísað til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskiplagsins í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Setja skal ákvæði um að 3 bílageymslur næst byggingu verði opnar eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Keldugötu 9, 11,12 13 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1910059
07
Keldugata 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsstjóri leggur til að frágangur gluggalauss geymslurýmis undir bílastæði geri ráð fyrir gegndræpu sandlagi undir hellulögn sem veitir vatni út í jarðveg innan lóðar.
Á meðan frágangur er með þeim hætti gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2006070
08
Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að gluggalausu geymslurými ofan við húsið sem gerir ráð fyrir gegndræpu sandlagi undir hellulögn sem veitir vatni út í jarðveg innan lóðar. Skipulasstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr hvað viðbyggingu utan byggingareits og undir bílastæði varðar. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.