GArðatorg 3 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
1. fundur
Breyting á eign úr skrifstofu í íbúð breytir ekki kröfum varðandi bílastæði í gildandi deiliskipulagi. Skipulag byggingar gefur möguleika á því að aðkoma að íbúðinni verði frá Hrísmóum. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er unnt að breyta húsnúmeri eignarinnar úr Garðatorg 3 í Hrísmóa 2b enda inngangur þá Hrísmóamegin. Eigendur annarra eigna að Garðatorgi 3 og Hrísmóum 2a og 2b hafa með undirritun lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytta notkun eignarinnar. Að Hrísmóum 2 a eru íbúðareignir á 2.hæð með aðkomu frá Hrísmóum en þjónustuhúsnæði á 1.hæð með aðkomu frá Garðatorgi.
Að mati skipulagsstjóra kallar breytt notkun úr skrifstofu í íbúð ekki á deiliskipulagsferli og er því ekki gerð athugsemd við breytta notkun.