Beint í efni

Grímsgata 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2112212

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

2. fundur

Lagðir fram uppfærðir lóðaruppdrættir fyrir Grímsgötu 8, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.

Bæjarráð Garðabæjar

03

38. (2045). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 19 íbúðum við Grímsgötu 8.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

10. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Grímsgötu 8.
Framlagðir aðaluppdrættir víkja frá ákvæðum deiliskipulags sem hér segir:
-Hjólageymsla felld inn í stoðvegg á lóð í stað þess að vera frístandandi bygging.
-Stoðveggur er á lóðamörkum að bæjarlandi. Mikill halli er á lóðinni og liggur þessi lausn beinast við.
-Óbrotinn veggflötur er á einum stað 9,5 m en á að vera skv. deiliskipulagi mest 8 m. Skv. umsögn deiliskipulagshöfunda er ekki gert athugasemd við þetta þar sem uppbrot og útfærsla úthliða er í samræmi við markmið deiliskipulagsins.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

2. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að hluti inndreginniar efstu hæðar nær út að þakbrún. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu á 5.hæð varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.