10. fundur
10. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.09.2022
Kl. 13:15 - 13:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2203675
01
Vesturtún 27A Stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem gerir ráð fyrir því að heimilt verði að byggja allan útbyggingarreit hússins að götu í stað 1/3 eins og kveðið er á í deiliskipulagi. (grein 3.2. í skipulagsskilmálum.)
Sótt er um breytinguna vegna áforma um að reisa sólskála, 15,5 m2 að grunnfleti framan við húsið.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vesturtúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúm að Vesturtúni nr.5,7,8,10,12,14,16, 25,27b, 29a og 31,
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2206420
02
Bæjargil 51 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi á lóðinni Bæjargil 51 fyrir tilfærslu og stækkun byggingarreits bílageymslu og stækkun lóðar til austurs um 90 m2. Opið svæði er austan við hús að stofnstíg meðfram Arnarneslæk.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi á svæðinu. Grennarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 23,25,49,59 og 57.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2206276
03
Stætóskýli við Bæjarbraut
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulgasbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2206364
04
Lautargata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi.
Útfærsla uppbrots á úthliðum víkur læitillega frá ákvæðum en uppfyllir markmið deiliskipulags um uppbrot. Útfærsla sorpgeymslu víkur einnig frá ákvæðum og er stakstæð á lóð enda er pláss á lóð til staðar á þessari lóð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2112212
05
Grímsgata 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Grímsgötu 8.
Framlagðir aðaluppdrættir víkja frá ákvæðum deiliskipulags sem hér segir:
-Hjólageymsla felld inn í stoðvegg á lóð í stað þess að vera frístandandi bygging.
-Stoðveggur er á lóðamörkum að bæjarlandi. Mikill halli er á lóðinni og liggur þessi lausn beinast við.
-Óbrotinn veggflötur er á einum stað 9,5 m en á að vera skv. deiliskipulagi mest 8 m. Skv. umsögn deiliskipulagshöfunda er ekki gert athugasemd við þetta þar sem uppbrot og útfærsla úthliða er í samræmi við markmið deiliskipulagsins.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2208199
06
Maríugata 17 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa í endaraðhúsinu Maríugata 17 um útfærslu girðingar á lóðarmörkum.
Útfærsla girðingar á lóðarmörkum sem skjólveggur er samkvæmt meðfylgjandi skýringarmyndum ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags sem segir að girðingar skuli vera 90 cm háar með 50% gegnsæi.
Skjólveggir inni á lóð eru hinsvegar heimilaðir á deiliskipulagi allt að 1,5 m yfir því svæði sem því er ætlað að skýla og 1,8 m að utanverðu.
Skipulagsstjóri fellst á að beita fráviki frá skipulagi ef skjólveggur við heitan pott er í 1 metra fjarlægð frá lóðarmörkum og trjágróður á milli. Húsið er endaraðhús við jaðar hverfisins og er það ástæða þess að skipulagsstjóri fellst á að vikið sé frá ákvæðum um fjarlægð skjólveggjar frá húsi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2208590
07
Sunnuflöt 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipuags Flata sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur á baklóð stækki sem nemur áformum um viðbyggingu við einbýlishúsið.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Sunnuflöt 19,22, 23,24 og 26 sem og Markarflöt 20 og 22.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.