Strætóskýli við Bæjarbraut
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram umsókn umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu strætóskýlis og göngustígs í gegnum hljóðmön við Bæjarbraut á móts við Austurakra og Maltakur.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við deiliskipulagsbreytingu sem hefur tekið gildi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til greinar 2.h. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulgasbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (2030). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem gerir ráð fyrir biðstöð strætisvagna við Bæjarbraut á móts við Maltakur 7 og 9. Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum að Rúgakri 1 og Maltakri 7 og 9.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir biðstöð strætisvagna við Bæjarbraut á móts við Maltakur 7 og 9.
Tillagan gerir ráð fyrir því að göngustígar liggi frá biðstöð í báðar áttir og tengist göngstíg sem liggur meðfram Maltakri og Rúgakri. Rjúfa þarf hljóðmön vegna stígtenginganna.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra í samræmi við 2. mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Tryggja skal að ákvæði reglugerðar um hávaða nr. 724/2008 sé uppfyllt við breytinguna.
Grenndarkynna skal íbúum að Rúgakri 1 og Maltakri 7 og 9.