Beint í efni

Bæjargil 51 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2206420

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnta tillögu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

10. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi á lóðinni Bæjargil 51 fyrir tilfærslu og stækkun byggingarreits bílageymslu og stækkun lóðar til austurs um 90 m2. Opið svæði er austan við hús að stofnstíg meðfram Arnarneslæk.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi á svæðinu. Grennarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 23,25,49,59 og 57.
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Bæjargili 51 um það hvort heimilað verði að stækka lóðina til austurs að opnu svæði milli íbúðarhúsa og stofnstígs meðfram Arnarneslæk.
Deiliskipulag Bæjargils var samþykkt í bæjarstjórn árið 1984. Þar sem að á þeim tíma hafði Aðalskipulag Garðabæjar ekki verið staðfest telst deiliskipulag Bæjargils ekki vera í gildi sbr.úrskurð um deiliskipulag Arnarness nr.23/2010.
Byggingarleyfi fyrir bílageymslu var veitt fyrir bílageymslu af sömu stærð árið 1996 en ekki kom til framkvæmda.
Skiplagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir stækkun lóðar og staðsetningu bílageymslu til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Eysteinn Haraldsson vék af fundi undir þessum lið.