11. fundur
11. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.10.2022
Kl. 12:00 - 12:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2203675
01
Vesturtún 27A Stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturtúns að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að byggja allan útbyggingarreit hússins að götu í stað 1/3 eins og kveðið er á í deiliskipulagi.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2209324
02
Vesturtún 55a, - Stækkun á kvisti -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Spurt er hvort heimilað sé að framhlið kvista geti gengið beint upp frá húshlið.
Ekki er kveðið sértaklega á um kvisti og gerð þeirra í deiliskipulagi. Þar sem að deiliskipulagið heimilar nýtanlegt ris gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við þessa útfærslu kvista og kallar það því ekki á skipulagsferli.Æskilegt er að hönnuður beri breytingartillöguna undir upphaflegan hönnuð hússins ef þess er kostur.
Málsnúmer 2208687
03
Kumlamýri 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Með vísan í niðurstöðu samráðs við deiliskipulagshöfund lítur skipulagsstjóri svo á að þeir fermetrar sem gefnir eru upp sem viðmiðunarstærð í byggingarskilmálum í greinargerð deiliskipulags Kumlamýrar séu miðaðir við A-rými. Þau B-rými sem hönnun hússins gerir ráð fyrir skulu stuðla að því markmiði deiliskipulagsins að íverusvæði utanhúss séu felld inn í hjúp bygginga.
Málsnúmer 2207289
04
Kumlamýri 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Með vísan í niðurstöðu samráðs við deiliskipulagshöfund lítur skipulagsstjóri svo á að þeir fermetrar sem gefnir eru upp sem viðmiðunarstærð í byggingarskilmálum í greinargerð deiliskipulags Kumlamýrar séu miðaðir við A-rými. Þau B-rými sem hönnun hússins gerir ráð fyrir skulu stuðla að því markmiði deiliskipulagsins að íverusvæði utanhúss séu felld inn í hjúp bygginga.
Málsnúmer 2210282
05
Hraunprýði 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lagður fram uppdráttur af lóðarfrágangi að Hraunprýði 5.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við hæð girðingar sem eru við lóðarmörk að göngustíg enda er hún í samræmi við samþykktir Garðabæjar um veggi og girðingar.
Eigendur aðliggjandi lóðar hafa lýst því yfir með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemd við útfærslu girðingar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2210134
06
Sunnuflöt 21 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki lítillega á baklóð vegna áforma um viðbyggingu.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Sunnuflöt 19,22,23,24 og 26 sem og Markarflöt
20 og 22.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2209425
07
Krókamýri 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagt fram umsókn um byggingarleyfi fyrir kjallara undir bílageymslu.
Kjallarar eru heimilaðir samkvæmt skipulagsskilmálum en skipulagið telst ekki í gildi þar sem að það var samþykkt í bæjarstjórn áður en að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi.
Þar sem að upphaflegt deiliskipulag heimilar kjallara og kjallari undir bílageymslu hefur nú þegar verið byggður eru grenndaráhrif byggingarleyfisins hverfandi og því er grenndarkynning felld niður sbr. 2.msl.3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2208029
08
Skógarlundur 10 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2210283
09
Víðilundur 9- stækkun á byggingareit - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Lunda sem nær til lóðarinnar Víðilundur 9. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðurs um 1,5 m á 13 metra kafla og til austur um 1 metra á 10 metra löngum kafla. Ástæða fyrir tillögunni eru áform um viðbyggingu og fylgir skýringateikning með umsókn.
Skipulagsstjór metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Víðilundi 7, 8, 10,11 og 13 sem og Hvannalundi 10,12,15,17 og 19
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2206452
10
Gilsbúð 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir viðbyggingu sem kallar á stækkun byggingarreits á mæliblað. Stækkun byggingarreits er á baklóð 12,6 x 14 metrar(176 m2).
Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar því upp í 0,55 en það er 0,4 samkvæmt deiliskipulagi Bæjargils sem var til grundvallar uppbyggingar atvinnulóða við Gilsbúð. Krafa um eitt bílastæði á lóð á hverja 50 m2 er uppfyllt.
Deiliskipulag Bæjargils telst ekki í gildi á svæðinu þar sem það var samþykkt í bæjarstjórn áður en að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi.
Viðbygging verður rúma 5 metra frá lóðarmörkum að vestanverðu og er þar með tekið tilliti til kvaðar um holræsi sem þar liggur.
Skipulagsstjóri vísar byggingarleyfisumsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Gilsbúðar nr.7 og 3 sem og Smiðsbúðar nr. 4,6 og 8 og Bæjargils 46,48 og 50,Bæjargils 62,64,66 og 68 og Bæjargils 84,86,88 og 90.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2206420
11
Bæjargil 51 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnta tillögu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.