Skógarlundur 10 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (908). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Skógarlund 10 um 40 fermetra. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Skógarlundi nr. 7, 8, 9 og 11 og Hvannalundi 7, 9, og 11. (Mál nr. 2208029)
Bæjarráð Garðabæjar
04
32. (2039). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Skógarlund 10 um 40 fermetra. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Skógarlundi nr. 7, 8, 9 og 11 og Hvannalundi 7, 9, og 11.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Lunda sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur íbúðarhússins að Skógalundi stækki um tæpa 40 fermetra (4,35x9,1m) til vesturs inn á baklóð.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Skógarlundar nr. 7,8,9,11 og 12 sem og Hvannalundar 7,9 og 11.