12. (908). fundur
12. (908). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.09.2022
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - varabæjarfulltrúi
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 1. september 2022 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2209002F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 6/9 ´22.
Fundargerðin sem er 8 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2209010F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 13/9 ´22.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 17. tl., tillögu Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna stækkunar lóðar við Kauptún 4.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi, 1 tl., minnisblað um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ og 17. tl., tillögu Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka og 16. tl., tillögu Garðabæjarlistans um gerð hjólreiðaáætlunar fyrir Garðabæ.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka og að nýju 17. tl., tillögu Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Björg Fenger, ræddi 1 tl., minnisblað um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka, 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna stækkunar lóðar við Kauptún 4 og 17. tl., tillögu Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna stækkunar lóðar við Kauptún 4.
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna stækkunar lóðar við Kauptún 4, 1 tl., minnisblað um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ, 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka, 16. tl., tillögu Garðabæjarlistans um gerð hjólreiðaáætlunar fyrir Garðabæ, 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir stækkun kirkjugarðs og 17. tl., tillögu Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Fundargerðin sem er 18 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2208031F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 25/8 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2208036F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 31/8 ´22.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., hugmyndir um ráðstöfun rýmis á 2. og 3. hæð Miðgarðs.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., hugmyndir um ráðstöfun rýmis á 2. og 3. hæð Miðgarðs.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2208025F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 6/9 ´22.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., heimsókn í leikskólann Urriðaból og 5., 6, og 7. tl., afgreiðslu leikskólanefndar á umsóknum um tilfærslu á skipulagsdögum.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi, almennt um störf leikskólanefndar.
Almar Guðmundsson, ræddi almennt um störf leiksólanefndar. Þá ræddi Almar 1. tl., heimsókn í leikskólann Urriðaból og sagði frá skóflustungu vegna framkvæmda við nýjan leikskóla við Holtsveg.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2209004F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/9 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2209012F
07
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 12/9 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2202013
08
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/8 ´22.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., samþykktir um hundahald.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2203017
09
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 26/8 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201365
10
Fundargerð stjórnar SSH frá 5/9 ´22.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 2. tl., kynningu á fundargerð 2. fundar stefnuráðs áfangastaðarins höfuðborgarsvæðisins.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., kynningu á fundargerð 2. fundar stefnuráðs áfangastaðarins höfuðborgarsvæðisins.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., kynningu fulltrúa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á hlutverki og starfsemi heilsugæslunnar.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu fulltrúa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á hlutverki og starfsemi heilsugæslunnar, 7. tl., stöðu húsnæðismarkaðar á höfuðborgarsvæðinu og 8. tl., stöðu almenningssamgangna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201292
11
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 8/7 ´22.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 4. tl., breytingar á gjaldskrá, 5. tl., endurnýjun á samningi um rekstur grenndarstöðva, 6. tl., helstu verkefni Sorpu og 7. tl., önnur mál ábendingu um framsetningu fundargerða og fylgigagna.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 7. tl., önnur mál - ábendingu um framsetningu fundargerða og fylgigagna.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., önnur mál - ábendingu um framsetningu fundargerða og fylgigagna.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 7. tl., önnur mál - ábendingu um framsetningu fundargerða og fylgigagna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2203020
12
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 5/9 ´22.
Almar Guðmundsson, ræddi almennt um hlutverk eigendafunda byggðasamlaganna og sagði frá nýlegum fundi stefnuráðs byggðasamlaganna. Þá ræddi Almar 1. tl., fjárhagsáætlun Sorpu bs. og 2. tl., stöðumat á urðun í Álfsnesi.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., stöðumat á urðun í Álfsnesi.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., stöðumat á urðun í Álfsnesi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2203555
13
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 5/9 ´22.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2209269
14
Tillaga Viðreisnar um áætlanagerð er varðar kannanir meðal starfsmanna á starfsumhverfi, líðan, samskiptum og vinnuaðstöðu með púlsmælingum.
Guðlaugur Kristmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að gera áætlanir um kannanir meðal starfsmanna á starfsumhverfi, líðan, samskiptum og vinnuaðstöðu með púlsmælingum. Markmið púlsmælinga er að lækka starfsmannaveltu til þess að draga úr kostnaði og viðhalda í þekkingu núverandi starfsmanna en ekki síður til þess að greina tækifæri til þess að bæta líðan, auka afköst og greina tækifæri til starfsþróunar. Þá má nýta niðurstöður til þess að greina tækifæri til þjálfunar og endurmenntun starfsmanna annars vegar og markvissrar og einstaklingsmiðaðra tækifæra til stjórnendaþjálfunar.
Sé ekki til þekking meðal stjórnenda eða mannauðsteymis Garðabæjar í púlsmælingum þá skuli ráðgjafi fenginn til aðstoðar við þessa áætlanagerð.“
Greinargerð
Starfsmenn eru Garðabæ mikilvægir og nauðsynlegt að huga að mannauðsmálum með nýstárlegum aðferðum til þess að tryggja þróun starfsumhverfis. Púlsmælingar eru framkvæmdar reglulega, til dæmis mánaðarlega. Með áþreifanlegum gögnum er hægt að fara í mikilvægan og verðmætan samanburð milli stofnana eða tímabila til þess að sjá árangur inngripa eða stuðnings.
Með reglulegum og skipulögðum könnunum meðal starfsmanna má greina vandamál fyrr og stíga inn í áður en þau skapa óþarfa kostnað eða tími þeirra fer til spillis. Stjórnendur sjá tækifæri til úrbóta í eigin störfum og hvar endurmenntun henti þeim best til þess að ná betri tökum á starfi sínu.
Það er trú okkar í Viðreisn að púlsmælingar gætu reynst mikilvægt tæki til þess að halda aftur af kostnaði, minnka starfsmannaveltu, auka ánægju starfsmanna og halda áfram að laða að hæft starfsfólk til Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir mikilvægi þess að gerðar séu kannanir á vinnuumhverfi, samskiptum og líðan starfsmanna bæjarins. Mannauðsstefna Garðabæjar, lýðheilsu- og forvarnarstefna bæjarins og þau heimsmarkmið sem Garðabær hefur ákveðið að innleiða styðja við þetta. Til staðar er verklag þar sem gerðar eru reglulegar kannanir undir nafninu starfsmannapúlsinn og skólapúlsinn, sem hefur verið að styrkjast í sessi. Það liggur þó fyrir að eðlilegt er að þróa notkun samræmdra og tíðari vinnustaðamælinga og unnið hefur verið að því á mannauðs- og kjaradeild.
Framkomin tillaga þarfnast nánari vinnu eins og fram kemur í efni hennar, auk þess sem eðlilegt er ræða fjárhagsleg mál henni tengd. Er því lagt til að tillögunni verði vísað til bæjarstjóra og til gerðar fjárhagsáætlunar.“
Almar lagði til að tillögunni verði vísað til til bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls að nýju og lagði til að tillögunni verði einnig vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarráðs, bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Málsnúmer 2209266
15
Fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
1. Hversu oft fara fram mælingar/skoðanir á raka eða rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar?
2. Þegar mælingar/skoðanir fara fram vegna mögulegra rakaskemmda til hvaða aðila hefur Garðabær leitað?
3. Hvernig hefur verið staðið að því að velja viðbragðsaðila við rakaskemmdum og myglu í húsnæði í Garðabæ? Þá er átt við úttektaraðila, viðgerðaraðila og byggjendur á nýjum byggingarhlutum í kjölfar þess að upp kemur að um rakaskemmdir og myglu sé að ræða í húsnæði á vegum bæjarins.
4. Eru til verklagsreglur hjá Garðabæ þegar grunur er kominn upp um raka eða rakaskemmdir í húsnæði á vegum Garðabæjar?
5. Stendur til að koma á reglubundnum mælingum/skoðunum á húsnæði á vegum Garðabæjar, ef slíkt er ekki til staðar nú þegar?
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls og lagði til að vísa fyrirspurninni til bæjarstjóra.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir vísar framkominni fyrirspurn til bæjarstjóra.
Málsnúmer 2209267
16
Tillaga Garðabæjarlistans um að matarkostnaður í leik- og grunnskólum falli undir reglur um tekjutengingu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Í febrúar á þessu ári tóku gildi reglur í Garðabæ um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn samþykki að undir þessar reglur falli einnig matarkostnaður í leik- og grunnskólum.“
Greinargerð
Ekkert veganesti er betra fyrir barn en að alast ekki upp við efnislegan skort. Þetta sýnir fjöldi rannsókna ítrekað. Það var þess vegna mikið framfaraskref þegar tekjutengingu á gjöldum fyrir leikskóla, dagforeldra og frístund var komið á í Garðabæ í febrúar 2022. Í þeim reglum kemur fram að þær eigi að endurskoða við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Garðabæjarlistinn vill við þessa endurskoðun gera enn betur fyrir tekjulægri fjölskyldur, ekki síst með hliðsjón af t.d. heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (sjá markmið 1 og 2). Í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er einnig fjallað sérstaklega um rétt barna til næringar og skyldu stjórnvalda til að uppfylla þau réttindi (grein 27). Það er öllum til hagsbóta að jafna stöðu barna í sveitarfélaginu og í efnahagsástandi líkt og nú ríkir er sérstaklega mikilvægt að sá hópur sem mest þarf á að halda njóti ríkari afsláttarkjara.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar.
Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu. Björg lagði til að tillögunni verði vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, tók til máls um framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Málsnúmer 2209274
17
Tillaga Sjálfstæðisflokksins um húsnæðismál fatlaðs fólks.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela fjölskyldusvið Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.
Stefnt skal að því að niðurstaða yfirferðar fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en í lok nóvember nk.“
Greinargerð:
Búsetukjarni við Unnargrund fyrir sex fatlaða einstaklinga var tekinn í notkun á árinu 2019, nú í september 2022 hófust framkvæmdir við nýjan búsetukjarna fatlaðs fólks með sex íbúðum við Brekkuás og áform eru um uppbyggingu búsetuúrræða í Hnoðraholti.
Markmið með vinnu fjölskyldusviðs og fjölskylduráðs er að stytta enn frekar biðlista eftir sértæku húsnæði fatlaðs fólks í Garðabæ og að fatlað fólk og aðstandendur þeirra sem samþykktir hafa verið á biðlista eigi greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu sína á biðlistum og áætlunun um hvenær þeir megi vænta úrlausnar sinna húsnæðismála.
Gunnar Valur Gíslason, formaður fjölskylduráðs.
Björg Fenger, formaður bæjarráðs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til eftirfarandi breytingartillögu.
Á eftir „ í samráði við fjölskylduráð“ komi „og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Guðlaugur Kristmundsson lagði fram eftirfarandi bókun sem hann flytur í nafni bæjarfulltrúa Söru Daggar Svanhildardóttur, sem er fjarverandi á fundinum.
„Ég fagna því mjög að sjá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins bregðast við ábendingum mínum um þjónustu við fatlað fólk síðustu árin. Það er gott að finna að rödd Viðreisnar er að ná í gegn eins og tillaga meirihlutans um húsnæðismál fatlaðs fólks ber skýrt vitni um. Um leið vil ég minna á mikilvægi aðkomu samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að þessu verkefni. Ég ber ykkur góðar kveðjur mínar.“
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að tillagan verði samþykkt með framkominni breytingartillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með áorðinni breytingu.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, vék af fundi kl. 18:55 og sæti hans á fundinum tók Stella Stefánsdóttir, varabæjarfulltrúi.
Málsnúmer 2209275
18
Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar að leita til ráðgjafa um mótun tillögu að útfærslu og tímasetningu á rýnihópum notenda og aðstandenda um helstu þætti þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar fólks til þjónustunnar. Með vinnu rýnihópanna verði leitast til að fá fram góðan og áreiðanlegan grunn til að vinna með til að bæta þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ.
Lagt skal upp með að fundir rýnihópanna verði haldnir í október 2022 og að samantekt úr vinnu hópanna liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en tveimur vikum eftir að framkvæmd lýkur.“
Greinargerð:
Þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ hefur vaxið umtalsvert undanfarin ár. Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2021 og í byrjun árs 2022 gefa til kynna að mörg tækifæri séu til úrbóta í málaflokknum.
Með því að leitast við að dýpka skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar notenda til þjónustunnar verður hægara um vik að efla enn frekar þjónustu við fatlað fólk í bænum. Til þess að það markmið náist er mikilvægt að tryggja rödd notenda og aðstandenda inn í vinnuna með þátttöku þeirra í vinnu rýnihópa.
Niðurstöður úr vinnu rýnihópanna verða síðan notaðar til að þróa áfram þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ með það að markmiði að efla þjónustuna og bæta upplifun notenda.
Gunnar Valur Gíslason, formaður fjölskylduráðs.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til eftirfarandi breytingartillögu.
Á eftir „í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar“ komi „ og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði til að tillaga verði samþykkt með framkominni breytingartillögu. Gunnar Valur lagði einnig til að í stað „í október 2022“ komi „hið fyrsta“.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með áorðnum breytingum.
Málsnúmer 2109394
19
Tillaga að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi
Lögð er fram til afgreiðslu tillaga að sameiginlegri svæðisáætlun 2022-2032 um meðhöndlun úrgangs á Suðvesturlandi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að sameiginlegri svæðisáætlun 2022-2032 um meðhöndlun úrgangs á Suðvesturlandi.
Málsnúmer 2209207
20
Samþykkt um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Lögð fram til afgreiðslu samþykkt um hundahald til að gilda í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti samþykkt um hundahald til að gilda í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Málsnúmer 2208694
21
Samþykktir um stjórn Garðabæjar. (síðari umræða)
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri lagði fram svohljóðandi breytingartillögu við samþykktir um stjórn Garðabæjar.
Á eftir 12. lið D. liðar 1. mgr. 56. gr. bætist við nýr liður og verður svohljóðandi:
„
13. Ungmennaráð. Ellefu fulltrúa á aldrinum 14 - 20 ára í ungmennaráð Garðabæjar að fengnum tilnefningum og skulu þeir eiga lögheimili í Garðabæ, sbr. erindisbréf samþykkt á fundi bæjarstjórnar 7. maí 2015.“
Björg Fenger, tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn fagnar því að bæjarstjórn sameinist um þá upphaflegu hugmynd Viðreisnar um að styrkja stoðir lýðræðislegrar umræðu á vettvangi sveitarfélagsins með því að gera breytingar á samþykktum Garðabæjar með þessum hætti. Það skiptir máli að þeir flokkar sem ná kjöri til bæjarstjórnar eigi sæti við borðið til lýðræðislegrar umræðu í helstu nefndum sveitarfélagsins og gefi þannig umræðunni frekari breidd.“
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna breytingartillögu við samþykktir um stjórn Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykktir um stjórn Garðabæjar með áorðinni breytingartillögu.
Málsnúmer 2208695
22
Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ. (síðari umræða)
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ.