Tillaga Garðabæjarlistans um að matarkostnaður í leik- og grunnskólum falli undir reglur um tekjutengingu.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (908). fundur
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Í febrúar á þessu ári tóku gildi reglur í Garðabæ um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn samþykki að undir þessar reglur falli einnig matarkostnaður í leik- og grunnskólum.“
Greinargerð
Ekkert veganesti er betra fyrir barn en að alast ekki upp við efnislegan skort. Þetta sýnir fjöldi rannsókna ítrekað. Það var þess vegna mikið framfaraskref þegar tekjutengingu á gjöldum fyrir leikskóla, dagforeldra og frístund var komið á í Garðabæ í febrúar 2022. Í þeim reglum kemur fram að þær eigi að endurskoða við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Garðabæjarlistinn vill við þessa endurskoðun gera enn betur fyrir tekjulægri fjölskyldur, ekki síst með hliðsjón af t.d. heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (sjá markmið 1 og 2). Í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er einnig fjallað sérstaklega um rétt barna til næringar og skyldu stjórnvalda til að uppfylla þau réttindi (grein 27). Það er öllum til hagsbóta að jafna stöðu barna í sveitarfélaginu og í efnahagsástandi líkt og nú ríkir er sérstaklega mikilvægt að sá hópur sem mest þarf á að halda njóti ríkari afsláttarkjara.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar.
Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu. Björg lagði til að tillögunni verði vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, tók til máls um framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.