Tillaga Viðreisnar um áætlanagerð er varðar kannanir meðal starfsmanna á starfsumhverfi, líðan, samskiptum og vinnuaðstöðu með púlsmælingum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (2043). fundur
Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 15. september sl. og vísað til bæjarráðs, bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Á fund bæjarráðs kom Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og fór yfir hvernig staðið hefur verið að gerða viðhorfskannana meðal starfsmanna hjá Garðabæ. Einnig kom fram hvaða möguleikar hafa verið skoðaðir varðandi aukna tíðni viðhorfskannana, t.d. með reglulegum púlsmælingum.
Tillögunni vísað áfram til bæjarstjóra og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
12. (908). fundur
Guðlaugur Kristmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að gera áætlanir um kannanir meðal starfsmanna á starfsumhverfi, líðan, samskiptum og vinnuaðstöðu með púlsmælingum. Markmið púlsmælinga er að lækka starfsmannaveltu til þess að draga úr kostnaði og viðhalda í þekkingu núverandi starfsmanna en ekki síður til þess að greina tækifæri til þess að bæta líðan, auka afköst og greina tækifæri til starfsþróunar. Þá má nýta niðurstöður til þess að greina tækifæri til þjálfunar og endurmenntun starfsmanna annars vegar og markvissrar og einstaklingsmiðaðra tækifæra til stjórnendaþjálfunar.
Sé ekki til þekking meðal stjórnenda eða mannauðsteymis Garðabæjar í púlsmælingum þá skuli ráðgjafi fenginn til aðstoðar við þessa áætlanagerð.“
Greinargerð
Starfsmenn eru Garðabæ mikilvægir og nauðsynlegt að huga að mannauðsmálum með nýstárlegum aðferðum til þess að tryggja þróun starfsumhverfis. Púlsmælingar eru framkvæmdar reglulega, til dæmis mánaðarlega. Með áþreifanlegum gögnum er hægt að fara í mikilvægan og verðmætan samanburð milli stofnana eða tímabila til þess að sjá árangur inngripa eða stuðnings.
Með reglulegum og skipulögðum könnunum meðal starfsmanna má greina vandamál fyrr og stíga inn í áður en þau skapa óþarfa kostnað eða tími þeirra fer til spillis. Stjórnendur sjá tækifæri til úrbóta í eigin störfum og hvar endurmenntun henti þeim best til þess að ná betri tökum á starfi sínu.
Það er trú okkar í Viðreisn að púlsmælingar gætu reynst mikilvægt tæki til þess að halda aftur af kostnaði, minnka starfsmannaveltu, auka ánægju starfsmanna og halda áfram að laða að hæft starfsfólk til Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir mikilvægi þess að gerðar séu kannanir á vinnuumhverfi, samskiptum og líðan starfsmanna bæjarins. Mannauðsstefna Garðabæjar, lýðheilsu- og forvarnarstefna bæjarins og þau heimsmarkmið sem Garðabær hefur ákveðið að innleiða styðja við þetta. Til staðar er verklag þar sem gerðar eru reglulegar kannanir undir nafninu starfsmannapúlsinn og skólapúlsinn, sem hefur verið að styrkjast í sessi. Það liggur þó fyrir að eðlilegt er að þróa notkun samræmdra og tíðari vinnustaðamælinga og unnið hefur verið að því á mannauðs- og kjaradeild.
Framkomin tillaga þarfnast nánari vinnu eins og fram kemur í efni hennar, auk þess sem eðlilegt er ræða fjárhagsleg mál henni tengd. Er því lagt til að tillögunni verði vísað til bæjarstjóra og til gerðar fjárhagsáætlunar.“
Almar lagði til að tillögunni verði vísað til til bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls að nýju og lagði til að tillögunni verði einnig vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarráðs, bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.