Beint í efni

36. (2043). fundur

11.10.2022
Bæjarráð Garðabæjar

36. (2043). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

11.10.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2209269

01

Tillaga Viðreisnar um áætlanagerð er varðar kannanir meðal starfsmanna á starfsumhverfi, líðan, samskiptum og vinnuaðstöðu með púlsmælingum.

Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 15. september sl. og vísað til bæjarráðs, bæjarstjóra og til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Á fund bæjarráðs kom Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og fór yfir hvernig staðið hefur verið að gerða viðhorfskannana meðal starfsmanna hjá Garðabæ. Einnig kom fram hvaða möguleikar hafa verið skoðaðir varðandi aukna tíðni viðhorfskannana, t.d. með reglulegum púlsmælingum.

Tillögunni vísað áfram til bæjarstjóra og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209348

02

Svar við fyrirspurn Viðreisnar um framkvæmd og stöðu barnaverndarmála í Garðabæ.

Á fund bæjarráðs kom Hildigunnur Árnadóttir, yfirfélagsráðgjafi og gerði nánari grein fyrir svörum við spurningum um stöðu barnaverndarmála í Garðabæ.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2210001

03

Umsagnarbeiðni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni listahátíðar á Garðatorgi.

Um er að ræða umsókn um tímabundið áfengisleyfi í tilefni af listahátíð á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar, að Garðatorgi 3-5, föstudaginn 28. október 2022.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2210100

04

Tilkynning frá Menntamálastofnun varðandi þátttöku í framkvæmd á ytra mati á leikskólum árið 2023, dags. 04.10.2022.

Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar fræðslu- og menningarsviðs og til afgreiðslu leikskólanefndar.

Málsnúmer 2210101

05

Tilkynning frá Alþingi varðandi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123 2010 (uppbygging innviða), 144. mál., dags. 03.10.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2208694

06

Minnisblað vegna athugasemda ráðuneytis við nýjar samþykktir Garðabæjar, dags. 07.10.22.

Bæjarráð telur athugasemdir ráðuneytisins til bóta varðandi skýrleika samþykktanna og telur rétt að taka þær til greina í endanlegri gerð samþykktanna að undanskilinni tillögu að ákvæði 11. tl., við 5. gr. samþykktanna.

Málsnúmer 2210174

07

Bréf Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar varðandi upplýsingaskyldu eigenda almennra íbúða, dags. 07.10.22.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að svara erindinu og veita umbeðnar upplýsingar.

Svar við bréfinu verður lagt fram í bæjarráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111135

08

Fundargerðir ungmennaráðs frá 15/2 og 26/9 ´22.

Fundargerðir ungmennaráðs frá 15. febrúar 2022 og 26. september 2022 lagðar fram.

Málsnúmer 2206112

09

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023 og 2024-2026.

Drög að fjárhagsáætlun ásamt gjaldskrám verða lögð fram á fundi bæjarráðs 18. október nk. og áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn verður lögð fram á fundi bæjarráðs 25. október nk.