Beint í efni

Fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.

Málsnúmer 2209266

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (2045). fundur

Lagt fram svar við fyrirspurn Garðabæjalistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (908). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

1. Hversu oft fara fram mælingar/skoðanir á raka eða rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar?
2. Þegar mælingar/skoðanir fara fram vegna mögulegra rakaskemmda til hvaða aðila hefur Garðabær leitað?
3. Hvernig hefur verið staðið að því að velja viðbragðsaðila við rakaskemmdum og myglu í húsnæði í Garðabæ? Þá er átt við úttektaraðila, viðgerðaraðila og byggjendur á nýjum byggingarhlutum í kjölfar þess að upp kemur að um rakaskemmdir og myglu sé að ræða í húsnæði á vegum bæjarins.
4. Eru til verklagsreglur hjá Garðabæ þegar grunur er kominn upp um raka eða rakaskemmdir í húsnæði á vegum Garðabæjar?
5. Stendur til að koma á reglubundnum mælingum/skoðunum á húsnæði á vegum Garðabæjar, ef slíkt er ekki til staðar nú þegar?
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls og lagði til að vísa fyrirspurninni til bæjarstjóra.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir vísar framkominni fyrirspurn til bæjarstjóra.