Beint í efni

38. (2045). fundur

25.10.2022
Bæjarráð Garðabæjar

38. (2045). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

25.10.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2206112

01

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fundi bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 og árin 2024 - 2026, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 eru:

Heildartekjur 24.691.612 þkr.

Heildargjöld 21.284.004 þkr.

Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 3.407.608 þkr.

Afskriftir 1.556.581 þkr.

Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda 1.851.026 þkr.

Fjármunatekjur (fjármagngjöld) 1.353.356 þkr.

Rekstrarniðurstaða 497.670 þkr.

Framkvæmdir - samtals A og B hluti 5.800.000 þkr.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2023 (2023-2026) til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 3. nóvember 2022.

Málsnúmer 2112212

02

Grímsgata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 19 íbúðum við Grímsgötu 8.

Málsnúmer 2012075

03

Urriðaholtsstræti 42 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi til breyta áður samþykktum uppdráttum fjölbýlishúss með 10 íbúðum að Urriðaholtsstræti 42.

Málsnúmer 2210384

04

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. varðandi gjaldskrá, dags. 17.10.22.

Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2210435

05

Bréf mennta- og barnamálaráðuneytisins varðandi framlag vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð <br/><br/>utan heimilis á árinu 2022, dags. 18.10.22.

Í bréfinu kemur fram að áformað er að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir sem vistuð eru utan heimilis árið 2022.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2210461

06

Bréf ADHD samtakanna um styrk og samstarf á árinu 2023, dags. 19.10.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2210462

07

Tilkynning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu varðandi áform um ný heildarlög um skólaþjónustu og nýja þjónustustofnun í samráðgátt, dags. 18.10.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2210487

08

Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi ágóðahlutagreiðslu 2022, dags. 18.10.22.

Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar fyrir árið 2022 er að fjárhæð kr. 1.810.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2207011

09

Drög að samstarfssamningi við Samtökin 78.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfsamning við Samtökin 78.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209266

10

Fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.

Lagt fram svar við fyrirspurn Garðabæjalistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.

Fylgiskjöl