Tillaga um samstarf við Samtökin 78.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (911). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning við Samtökin 78 og felur bæjarstjóra undirritun hans. (Mál nr. 2207011)
Bæjarráð Garðabæjar
02
38. (2045). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfsamning við Samtökin 78.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
24. (2031). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga sem allir bæjarráðsfulltrúar standa að.
„Bæjarráð Garðabæjar samþykkir að fela fræðslu- og menningarsviði að ganga til viðræðna við Samtökin ’78 um samstarfssamning, með það fyrir augum að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en um leið að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar. Jafnframt verði horft til gildandi jafnréttisstefnu bæjarins og metið hvort og þá að hvaða leyti hún geti ýtt betur undir fjölbreytileika og styrkt stöðu hinsegin fólks og annarra hópa sem geta átt undir högg að sækja stöðu sinnar vegna.“
Greinargerð
Garðabær stendur með hinsegin fólki og baráttu þeirra fyrir mannréttindum. Í Garðabæ tilheyrum við öll og það er okkur, kjörnum fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn Garðabæjar, mikilvægt að sveitarfélagið sýni stuðning sinn í verki. Þess vegna leggjum við til að gengið verði til viðræðna við Samtökin ’78 - félag hinsegin fólks á Íslandi, sem halda úti öflugu og faglegu fræðslustarfi og ráðgjöf, um samstarfssamning. Það er samfélaginu öllu mikilvægt að mannréttindi og virðing fyrir fjölbreytileika mannlífsins sé í hávegum höfð.
Garðabær er barnvænt sveitarfélag og vinnur að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Aukin meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu er mikilvægur þáttur í þeirri vinnu.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Í tilefni af samþykkt tillögunnar munu bæjarráðsfulltrúar að loknum fundi koma að endurmálun regnbogafánans við inngang Garðatorgs 7.