Víðilundur 9- stækkun á byggingareit - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Lunda að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Lunda sem nær til lóðarinnar Víðilundur 9. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðurs um 1,5 m á 13 metra kafla og til austur um 1 metra á 10 metra löngum kafla. Ástæða fyrir tillögunni eru áform um viðbyggingu og fylgir skýringateikning með umsókn.
Skipulagsstjór metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Víðilundi 7, 8, 10,11 og 13 sem og Hvannalundi 10,12,15,17 og 19
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.