Gilsbúð 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð vegna viðbyggingar. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0.45 í 0.55.
Engar athugasemdir bárust og gerir skipulagsstjóri því ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir stækkun sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
11. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir viðbyggingu sem kallar á stækkun byggingarreits á mæliblað. Stækkun byggingarreits er á baklóð 12,6 x 14 metrar(176 m2).
Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar því upp í 0,55 en það er 0,4 samkvæmt deiliskipulagi Bæjargils sem var til grundvallar uppbyggingar atvinnulóða við Gilsbúð. Krafa um eitt bílastæði á lóð á hverja 50 m2 er uppfyllt.
Deiliskipulag Bæjargils telst ekki í gildi á svæðinu þar sem það var samþykkt í bæjarstjórn áður en að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi.
Viðbygging verður rúma 5 metra frá lóðarmörkum að vestanverðu og er þar með tekið tilliti til kvaðar um holræsi sem þar liggur.
Skipulagsstjóri vísar byggingarleyfisumsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Gilsbúðar nr.7 og 3 sem og Smiðsbúðar nr. 4,6 og 8 og Bæjargils 46,48 og 50,Bæjargils 62,64,66 og 68 og Bæjargils 84,86,88 og 90.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
7. fundur
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að stækka byggingarreit atvinnuhúsnæðis að lóðarmörkum að norðan og vestanverðu og að auka nýtingarhlutfall sem stækkuninni nemur.
Skipulagsnefnd bendir á að 5 metra breið kvöð um holræsi er á lóð meðfram vesturmörkum og því verður ekki unnt að láta byggingarreit ná yfir svæðið sem kvöðin nær til.
Athafnalóðir við Gilsbúð eru innan skipulags Bæjargils sem samþykkt var í bæjarstjórn árið 1984. Þar sem að á þeim tíma hafði Aðalskipulag Garðabæjar ekki verið staðfest telst deiliskipulag Bæjargils ekki vera í gildi sbr.úrskurð um deiliskipulag Arnarness nr.23/2010.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við að skipulagsstjóri vísi byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingu á baklóð sem taki tillit til kvaðar um holræsi til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga.