Beint í efni

Vesturtún 27A Stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2203675

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturtúns að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að byggja allan útbyggingarreit hússins að götu í stað 1/3 eins og kveðið er á í deiliskipulagi.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem gerir ráð fyrir því að heimilt verði að byggja allan útbyggingarreit hússins að götu í stað 1/3 eins og kveðið er á í deiliskipulagi. (grein 3.2. í skipulagsskilmálum.)
Sótt er um breytinguna vegna áforma um að reisa sólskála, 15,5 m2 að grunnfleti framan við húsið.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vesturtúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúm að Vesturtúni nr.5,7,8,10,12,14,16, 25,27b, 29a og 31,
Um afgreiðslu skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lögð fram fyrirspurn húseigenda um byggingu sólskála við parhúsið að Vesturtúni 27 a.
Svar: Skipulagsnefnd telur að sólskáli við vesturenda húss fari ekki vel þar sem að viðbygging myndi rjúfa heillega götumynd sem einkennist að sömu fjarlægð húsa frá götu. Sólskáli við suðurhlið kæmi frekar til greina ef útfærslan er ásættanleg.