Maríugata 17 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa í endaraðhúsinu Maríugata 17 um útfærslu girðingar á lóðarmörkum.
Útfærsla girðingar á lóðarmörkum sem skjólveggur er samkvæmt meðfylgjandi skýringarmyndum ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags sem segir að girðingar skuli vera 90 cm háar með 50% gegnsæi.
Skjólveggir inni á lóð eru hinsvegar heimilaðir á deiliskipulagi allt að 1,5 m yfir því svæði sem því er ætlað að skýla og 1,8 m að utanverðu.
Skipulagsstjóri fellst á að beita fráviki frá skipulagi ef skjólveggur við heitan pott er í 1 metra fjarlægð frá lóðarmörkum og trjágróður á milli. Húsið er endaraðhús við jaðar hverfisins og er það ástæða þess að skipulagsstjóri fellst á að vikið sé frá ákvæðum um fjarlægð skjólveggjar frá húsi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.