Beint í efni

2. fundur

24.01.2025
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

2. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

24.01.2025

Kl. 10:00 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2410477

01

Hliðsvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi - mhl.02

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á utanhússklæðningu.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2410476

02

Hliðsvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi - mhl.05

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki á matshluta 05.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2409043

03

Búðarflöt 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Staðfesting um samskipti lóðarhafa við Veitur hefur borist og er því samráð þar á milli til staðar.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2411451

04

Gásamýri 17-27 Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og umsögn deiliskipulagshöfundar. Leitað er álits vegna hugsanlegra breytinga á hæðarkótum raðhúsanna og bent á nokkur atriði sem betur mætti fara.

Skipulagsstjóri leggur áherslu á að breytingar á hæðarkóta hafi ekki áhrif á hámarkshæð húsanna yfir sjávarmáli en þau miðast við uppgefna hæðarkóta á hæðarblaði og leyfilega hámarkshæð yfir þeim. Einnig er mikilvægt að skil milli einkalóða og opinna svæða séu dregin fram með skýrum hætti með mismunandi hæðarlegu. Ekki er gerð athugasemd við það ef raðhús séu án stöllunnar í sömu lengju.

Skipulagsstjóri vísar að öðru leyti til svara deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2412097

05

Vesturtún 52 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.

Umsóknin felur í sér stækkun á bílskúr.

Viðbygging er innan byggingarreit og er stækkunin innan marka nýtingarhlutfalls.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2501287

06

Garðprýði 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Garðpýðis 2 um að fella út línu í byggingarreit sem tekur til hraunmyndana sem ber að vernda.

Eftir vettvangsskoðun er ekki að sjá að á lóðinni séu hraunmyndanir sem ber að vernda.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað varðar skilgreiningu deiliskipulags um að tekið sé tillit til hraunmyndana. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2411448

07

Kjarrprýði 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2501206

08

Lyngás 20 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir (reyndarteikningar) fyrir Lyngás 20. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2501103

09

Heiðarlundur 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti enda eru þeir í samræmi við grenndarkynnta deiliskipulagsbreytingu.

Málsnúmer 2411423

10

Útholt 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2306463

11

Vetrarmýri - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Vetrarmýri - Miðsvæði sem tekur á spennustöð við Vetrarbraut 9. Tillagan felur í sér að byggingarreitur undir spennuvirki er færður til og með því eru gerðar umbætur á sjónlínum hjólandi og gangandi vegfarenda.

Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar - Miðsvæði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í samræmi 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2501205

12

Víkurgata 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi. Sótt er um að loka bílakjallara með fellihurð og gönguhurð ásamt að loka ljósopi í þaki bílakjallara. Einnig er óskað eftir að aðlaga burðarsúlu í bílakjallar, sjá minnisblað frá verfræðistofunni Vík.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Málsnúmer 2409318

13

Skerpluholt 13 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2409059

14

Reiðstígur í Vífilsstaðahlíð - Dsk.br.

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gerð á nýjum reiðstíg á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði. Um 2,5 km langan stíg er að ræða.

Nýr reiðstígur liggur frá Grunnuvatnaskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð og tengist þar reiðstíg í Urriðakotshrauni. Með honum fæst tenging yfir í Hafnarfjörð um núverandi reiðgötur við Smyrlabúð.

Reiðstígurinn er liður í uppbyggingu á stígakerfi í upplandi Garðabæjar. Nýr stígur kemur í staðin fyrir reiðstíginn sem nú liggur með fram Flóttamannavegi frá Smalaholti að bæjarmörkum við Hafnarfjörð, en eldri stígur verður af öryggisástæðum aflagður og nýja tengingin kemur í hans stað.

Á kafla fer stígurinn í gegnum friðland Vífilsstaðavatns en liggur þá að mestu um lúpínubreiðu eða mel. Framkvæmdir eru gerðar í samráði við Náttúruverndarstofnun.

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gerð reiðstígsins í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2112212

15

Grímsgata 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppfærðir lóðaruppdrættir fyrir Grímsgötu 8, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2402325

16

Hönnun - Útboð - 3 stígar Hjóla og göngustígur á milli hfj og kóp

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir áningastað við Þorgarðsdys neðst í Súlunesi.

Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Súluness, 24, 25,26,27,29,31 og 33.

Leita skal umsagnar Minjastofnunar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2411491

17

Kjarrprýði 3 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulags Garðahrauns. Breytingin felur í sér breikkun á byggingarreit um 1 m til norðurs. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsögn lóðarhafa Kjarrprýðis 1 liggur fyrir.

Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.