Búðarflöt 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. (2157). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Arnari Rósenkranz Hilmarssyni, kt. 060487-3169 leyfi fyrir byggingu frístandandi bílskúrs/geymslu úr steypu að Búðarflöt 1.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
2. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Staðfesting um samskipti lóðarhafa við Veitur hefur borist og er því samráð þar á milli til staðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
15. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stakstæðri bílageymslu á einbýlishúslóðinni Búðarflöt 1 að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því er byggingarleyfisumsókn grenndarkynnt.
Ein athugasemd barst frá Veitum.
Umsókn og athugasemd vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
14. (947). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að vísa umsókn um byggingarleyfi um bílageymslu á lóð sem er í samræmi við byggingarleyfi sem var veitt árið 2018 en ekki hefur komið til framkvæmdar, í grenndarkynningu. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt árið 2015 og byggingarleyfi var veitt í samræmi við þá niðurstöðu sem fékkst í því ferli. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Tillögunni er vísað til grenndarkynningar að nýju í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum að Búðarflöt 2, 3, 4 og 6 og Lambhaga 6, 7, 8, 9 og 10.
Bæjarráð Garðabæjar
06
36. (2137). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa umsókn um byggingarleyfi um bílageymslu á lóð sem er í samræmi við byggingarleyfi sem var veitt árið 2018 en ekki hefur komið til framkvæmdar, í grenndarkynningu. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt árið 2015 og byggingarleyfi var veitt í samræmi við þá niðurstöðu sem fékkst í því ferli.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Tillögunni er vísað til grenndarkynningar að nýju í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum að Búðarflöt 2, 3, 4 og 6 og Lambhaga 6, 7, 8, 9 og 10.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lögð fram endurnýjuð umsókn um byggingarleyfi fyrir bílageymslu á lóð sem er í samræmi við byggingarleyfi sem var veitt árið 2018 en ekki hefur komið til framkvæmdar. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt árið 2015 og var byggingarleyfi í samræmi við þá niðurstöðu sem fékkst í því ferli.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar að nýju í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum að Búðarflöt 2,3,4 og 6 og Lambhaga 6,7, 8, 9, 10.