Hönnun - Útboð - 3 stígar Hjóla og göngustígur á milli hfj og kóp
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
6. fundur
Lögð umsókn Betri samgangna fyrir framkvæmdarleyfi fyrir samgöngustíg meðfram Hafnarfjarðarvegi, við neðanvert Súlunes.
Uppdrættir og verklýsing fylgja umsókn. Skipulagsstjóri veitir framkvæmdaleyfi sem er í samræmi við framlögð gögn, skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til greinar 2.h í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir áningastað við Þorgarðsdys neðst í Súlunesi.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Súluness, 24, 25,26,27,29,31 og 33.
Leita skal umsagnar Minjastofnunar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.