Kjarrprýði 3 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2411491
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulags Garðahrauns. Breytingin felur í sér breikkun á byggingarreit um 1 m til norðurs. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsögn lóðarhafa Kjarrprýðis 1 liggur fyrir.
Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.