Vetrarmýri - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Vetrarmýri - Miðsvæði sem tekur á spennustöð við Vetrarbraut 9. Tillagan felur í sér að byggingarreitur undir spennuvirki er færður til og með því eru gerðar umbætur á sjónlínum hjólandi og gangandi vegfarenda.
Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar - Miðsvæði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í samræmi 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. (939). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar, á grundvelli þess að gögnum verði breytt til samræmis við athugasemdir Skipulagstofnunar, sbr. bréf, dags. 19. febrúar 2024. Skipulagsnefnd telur ekki að breytingarnar varði grundvallaratriði tillögunnar og kallar því ekki á endurauglýsingu hennar.
Bæjarstjórn staðfestir samþykki skipulagsnefndar sem breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010."(Mál nr. 2306463)
Bæjarráð Garðabæjar
04
14. (2115). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar, á grundvelli þess að gögnum verði breytt til samræmis við athugasemdir Skipulagstofnunar, sbr. bréf, dags. 19. febrúar 2024. Skipulagsnefnd telur ekki að breytingarnar varði grundvallaratriði tillögunnar og kallar því ekki á endurauglýsingu hennar.
Bæjarráð staðfestir samþykki skipulagsnefndar sem breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
4. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar ásamt erindi Skipulagsstofnunar dags 19.febrúar sl. en tillagan var send Skipulagsstofnun til athugunar sbr. 3.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að lokinni afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarráðs.
Í erindinu var gerð athugasemd við að birt væri auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar áður en að brugðist væri við eftirfarandi þremur atriðum sem eru tilgreind hér að neðan.
Athugasemd 1:
Heimilað hlutfall atvinnuhúsnæðis er í ósamræmi við ákvæði rammahluta aðalskipulags fyrir Vetrarmýri (Vífilsstaðalands) þar sem að í töflu 4 á bls 53 í greinargerð segir í skipulagsákvæðum fyrir landnotkunarreit 4.08 M að gert sé ráð fyrir u.þ.b. 35.000-44.000 m2 af skrifstofum, þjónustu og atvinnuhúsnæði. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem auglýst var gerir hins vegar ráð fyrir 29.558 m2 og vantar því 5.442 m2 upp á að það ákvæði sé uppfyllt.
Tillaga að viðbrögðum:
Tillögu verði breytt þannig að skipulagi á jarðhæð í húsum nr.9 og 13 verði breytt og sá hluti sem auglýst breytingartillaga skilgreindi sem rými fyrir bifreiðargeymslur verði breytt í rými fyrir atvinnu. Við þá breytingu hækkar fermetrafjöldi atvinnuhúsnæðis í Vetrarmýri úr 29.558 í 35.488. Rými í bílageymslu minnkar sem því nemur. Þar með verður ákvæði um rammahluta aðalskipulags um fermetrarfjölda atvinnuhúsnæðis uppfyllt.
Athugasemd 2
Gera þarf grein fyrir og fjalla um umhverfisáhrif áætlunarinnar sbr. Lög nr.111/2021.
Tillaga að viðbrögðum:
Tillögu mun fylgja skýrsla sem skipulagsráðgjafi hefur útbúið þar sem gerð er grein fyrir umhverfisáhrifum breytingarinnar.
Athugasemd 3
Gera þarf betur grein fyrir því hvar verið er að fjölga íbúðum innan svæðisins og áhrifum þess.
Tillaga að viðbrögðum:
Á blaðsíðu 2 í skýrslu skipulagsráðgjafa um umhverfisáhrif breytingarinnar er fjölgun og staðsetning íbúða fyrir og eftir breytingu útskýrð.
Skipulagsnefnd fellst á ofangreindar tillögur að viðbrögðum og hefur gögnum verið breytt því til samræmis. Skipulagsnefnd telur ekki að breytingarnar varði grundvallaratriði tillögunnar og kallar því ekki á endurauglýsingu hennar.
Gerð er grein fyrir breytingum eftir athugasemdir Skipulagsstofnunar á lagfærðum uppdrætti og í greinargerð.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
06
9. (2110). fundur
Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn varðandi breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. október 2023 og var til afgreiðslu á fundi bæjarráðs 16. janúar 2024. Skipulagsstofnun gerir athugasemd við að auglýsing til staðfestingar á gildi breytingarinnar verði birt í B- deild Stjórnartíðinda.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
07
2. (2103). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóða við Vetrarbraut sem felur m.a. í sér fjölgun íbúða, breytingu á byggingarreitum og breytingum á húsnúmerum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar að lokinni auglýsingu ásamt þeim umsögnum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir.
Bifreiðageymslur sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum byggingum meðfram Reykjanesbraut (nr.9) verða byggðar sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verði 5 hæðir. Byggingarreitur fyrir hús nr. 1 við Vetrarbraut skiptist í tvennt og verður nr.1-3.
Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnusvæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m².
Engar athugasemdir bárust við tillöguna.
Skipulagsnefnd leggur til að brugðist verði við umsögn Heilbrigðiseftirlitsins þannig að ákvæði bætist við um varaaflstöð fyrir dæluhús og um öryggisloka fyrir settjörn til að bæta mengunarvarnir.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar með ofangreindri breytingu í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Vetrarmýrar að lokinni auglýsingu.
Engar athugasemdir hafa borist en ekki hafa allar umsagnir umsagnaraðila borist enn.
Afgreiðslu tillögu frestað þar til að allar umsagnir hafa borist.
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
14. (929). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir. Íbúðagerðir breytast ekki og áfram verður miðað við að flatarmál íbúða sé 100 m² að meðaltali. Þannig verði stefnt að því að bjóða upp á fjölbreyttar íbúðir í ólíkum stærðum. Áfram er miðað við lágmarkskröfur sem eru 1,5 bílastæði á íbúð 90 m² eða stærri og 1 bílastæði á íbúðir minni en 90 m². Nýlega var samþykkt breyting á deiliskipulagi Vetrarmýrar um almenna heimild til að byggja bílakjallara á tveimur hæðum undir húsum. Við þá breytingu rýmkast möguleikar byggingaraðila um að fjölga bílastæðum umfram lágmarkskröfur.
Bílastæði sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum bílahúsum meðfram Reykjanesbraut (Vetrarbraut 9) verða byggð sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verða 5 hæðir. Í þessum húsum auk þriðju skrifstofubyggingarinnar sem verður 4 hæðir á reitnum Vetrarbraut 13 verða lágmarkskröfur um bílastæði auknar þannig að í stað þess að hafa eitt bílastæði á hverja 100 m² verður ger krafa um eitt bílastæði á hverja 60 m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarreitur fyrir lóðarinnar við Vetrarbraut 1 skiptist og verður Vetrarbraut 1 og 3.
Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnuhúsnæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m². Í tillögunni er gert ráð fyrir að ekkert atvinnuhúsnæði verði á lóðinni við Vetrarbraut 1og 3. Á öðrum lóðum ætluðum fyrir atvinnuhúsnæði í gildandi deiliskipulagi að frátaldri lóðinni við Vetrarbraut 14 við suðurenda íþróttaleikvangs, verður eingöngu atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Hinsvegar koma nýjar byggingar ofan á bílahús meðfram Reykjanesbraut eingöngu ætlaðar fyrir atvinnuhúsnæði.“ (Mál nr. 2306463)
Bæjarráð Garðabæjar
11
39. (2092). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir. Íbúðagerðir breytast ekki og áfram verður miðað við að flatarmál íbúða sé 100 m² að meðaltali. Þannig verði stefnt að því að bjóða upp á fjölbreyttar íbúðir í ólíkum stærðum. Áfram er miðað við lágmarkskröfur sem eru 1,5 bílastæði á íbúð 90 m² eða stærri og 1 bílastæði á íbúðir minni en 90 m². Nýlega var samþykkt breyting á deiliskipulagi Vetrarmýrar um almenna heimild til að byggja bílakjallara á tveimur hæðum undir húsum. Við þá breytingu rýmkast möguleikar byggingaraðila um að fjölga bílastæðum umfram lágmarkskröfur.
Bílastæði sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum bílahúsum meðfram Reykjanesbraut (Vetrarbraut 9) verða byggð sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verða 5 hæðir. Í þessum húsum auk þriðju skrifstofubyggingarinnar sem verður 4 hæðir á reitnum Vetrarbraut 13 verða lágmarkskröfur um bílastæði auknar þannig að í stað þess að hafa eitt bílastæði á hverja 100 m² verður ger krafa um eitt bílastæði á hverja 60 m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarreitur fyrir lóðarinnar við Vetrarbraut 1 skiptist og verður Vetrarbraut 1 og 3.
Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnuhúsnæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m². Í tillögunni er gert ráð fyrir að ekkert atvinnuhúsnæði verði á lóðinni við Vetrarbraut 1og 3. Á öðrum lóðum ætluðum fyrir atvinnuhúsnæði í gildandi deiliskipulagi að frátaldri lóðinni við Vetrarbraut 14 við suðurenda íþróttaleikvangs, verður eingöngu atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Hinsvegar koma nýjar byggingar ofan á bílahús meðfram Reykjanesbraut eingöngu ætlaðar fyrir atvinnuhúsnæði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem unnin er af skipulagsráðgjafa Vetrarmýrar Sigurði Einarssyni fyrir hönd Framkvæmdafélagsins Arnarhvols ehf sem vinnur að uppbyggingu við Vetrarbraut í Vetrarmýri.
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir. Íbúðagerðir breytist ekki og áfram verði miðað við að flatarmál íbúðar sé 100 m² að meðaltali. Þannig verði stefnt að því að bjóða upp á fjölbreytta vöru í ólíkum stærðum. Áfram er miðað við lágmarkskröfur sem eru 1,5 bílastæði á íbúð 90 m² eða stærri og 1 bílastæði á íbúðir minni en það. Nýlega var samþykkt breyting á deiliskipulagi Vetrarmýrar þar sem almennt verður heimilt að byggja tvöfalda bílakjallara undir húsum. Við þá breytingu rýmka möguleikar byggingaraðila fyrir fleiri stæðum en lágmarkskröfur gera ráð fyrir.
Bílastæði sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum bílahúsum meðfram Reykjanesbraut (nr.9) verða byggð sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verði 5 hæðir. Í þessum húsum auk þriðju skrifstofubyggingarinnar á reitnum sem yrði 4 hæða (nr.13) verða lágmarkskröfur um bílastæði auknar þannig að í stað 1 bílastæðis á hverja 100m² verða kröfurnar 1 bílastæði á hverja 60m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarreitur fyrir hús nr. 1 skiptist í tvennt og verður nr.1-3.
Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnusvæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m². Í tillögunni er gert ráð fyrir að ekkert atvinnuhúsnæði verði í Vetrarbraut 1-3. Í öðrum byggingum ætluðum fyrir atvinnu í gildandi deiliskipulagi að frátaldri byggingu Vorbraut 14 við suðurenda íþróttaleikvangs, verður eingöngu atvinnurekstur á jarðhæð. Hinsvegar koma nýjar byggingar ofan á bílahús meðfram Reykjanesbraut eingöngu ætlaðar fyrir atvinnurekstur.
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu efh gerði grein fyrir tillögunni og minnisblaði sem hann hefur tekið saman um tillöguna og áhrif hennar á uppbyggingu í Vetrarmýri og Hnoðraholti.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.greinar skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
9. fundur
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu kynnti hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi Vetrarmýrar sem unnar hafa verið fyrir lóðarhafa og ná til lóðanna Vetrarbraut 1,3,5,og 7 auk bílageymslulóðanna 5b og 7b.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.