Beint í efni

39. (2092). fundur

17.10.2023
Bæjarráð Garðabæjar

39. (2092). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

17.10.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2309450

01

Eikarás 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Einari Sveinbjörnssyni, kt. 230365-3189, leyfi til breytingar á innra skipulagi einbýlishússins að Eikarási 8.

Málsnúmer 2309403

02

Rjúpnahæð 5 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birgi Erni Birgissyni, kt. 030272-4049, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Rjúpnahæð 5.

Málsnúmer 2309314

03

Víðilundur 9 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Benediktssyni, kt. 220977-4639, leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús að Viðilundi 9.

Málsnúmer 2306473

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til rammahluta Vífilsstaðalands.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. laganna, tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. október 2023, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland.

Tillagan gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda hæða á landnotkunarreit 4.11 Íb (Þorraholt) breytist úr 4 hæðum í 5 hæðir og á landnotkunarreit 4.12. Íb (Vorbraut) breytist úr 3 hæðum í 4 hæðir. Í báðum tilfellum verði efstu hæðir inndregnar. Töflur um áætlaðan heildarfjölda íbúða breytast lítillega.

Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögum er varða breytingar á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. september 2023. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir og gefa þær ekki tilefni á breytinga á auglýstri tillögu.

Samþykkt tillaga skal senda til Skipulagsstofnunar, ásamt athugasemdum og umsögn. Jafnframt skal senda þeim aðilum er athugasemdir gerðu afgreiðslu og umsögn bæjarstjórnar um athugasemdir og auglýsa niðurstöðu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2302671

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða við Vorbraut.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hús sunnan Vorbrautar hækki um eina hæð eða úr þremur í fjórar og verði efsta hæðin inndregin. Einnig verður gert ráð fyrir heimild til að hafa bílakjallara á sömu lóðum.



Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. september 2023. Ein athugasemd barst og var hún lögð fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemd liggur fyrir og þykir athugasemd ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstri tillögu.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 2305398

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða við Þorraholt.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða fjölbýlishúsalóða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir.

Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna var til 11. september 2023. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir. Skiplagsnefnd leggur til að taka tillit til athugasemda og gera eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu. Fellt er út ákvæði um heimild til að hafa hluta fjölbýlishússins á lóðinni við Þorraholt 7 fimm hæðir. Skilmálar fyrir suðurhluta og miðhluta lóðarinnar verða óbreyttir eða 4. hæðir eins og gildandi skipulag gerir ráð fyrir.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 2306463

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.

Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir. Íbúðagerðir breytast ekki og áfram verður miðað við að flatarmál íbúða sé 100 m² að meðaltali. Þannig verði stefnt að því að bjóða upp á fjölbreyttar íbúðir í ólíkum stærðum. Áfram er miðað við lágmarkskröfur sem eru 1,5 bílastæði á íbúð 90 m² eða stærri og 1 bílastæði á íbúðir minni en 90 m². Nýlega var samþykkt breyting á deiliskipulagi Vetrarmýrar um almenna heimild til að byggja bílakjallara á tveimur hæðum undir húsum. Við þá breytingu rýmkast möguleikar byggingaraðila um að fjölga bílastæðum umfram lágmarkskröfur.

Bílastæði sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum bílahúsum meðfram Reykjanesbraut (Vetrarbraut 9) verða byggð sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verða 5 hæðir. Í þessum húsum auk þriðju skrifstofubyggingarinnar sem verður 4 hæðir á reitnum Vetrarbraut 13 verða lágmarkskröfur um bílastæði auknar þannig að í stað þess að hafa eitt bílastæði á hverja 100 m² verður ger krafa um eitt bílastæði á hverja 60 m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarreitur fyrir lóðarinnar við Vetrarbraut 1 skiptist og verður Vetrarbraut 1 og 3.

Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnuhúsnæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m². Í tillögunni er gert ráð fyrir að ekkert atvinnuhúsnæði verði á lóðinni við Vetrarbraut 1og 3. Á öðrum lóðum ætluðum fyrir atvinnuhúsnæði í gildandi deiliskipulagi að frátaldri lóðinni við Vetrarbraut 14 við suðurenda íþróttaleikvangs, verður eingöngu atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Hinsvegar koma nýjar byggingar ofan á bílahús meðfram Reykjanesbraut eingöngu ætlaðar fyrir atvinnuhúsnæði.

Málsnúmer 2310034

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 18.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Hraunhóla 18. Grenndarkynna skal eigendum Hraunhóla 16, 19, 20, 21 og 23.

Málsnúmer 2309257

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar sem gerir ráð fyrir að Hamraneslína verði lögð í jörð frá endavirki við Kaldárselsveg að Hamranesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi bókun skipulagsnefndar.

„Skipulagsnefnd Garðabæjar bendir á að æskilegt væri að fram kæmi á uppdrætti staðsetning strengendavirkis. Nefndin bendir á ósamræmi milli texta og uppdráttar eftir breytingu þar sem að háspennulínan er sýnd í jörð frá strengendavirki að bæjarmörkum við Garðabæ. Það er hvorki í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 sem sýnir Hamraneslínur sem loftlínu né niðurstöðu samtals Garðabæjar við Landsnet um útfærslu Hamraneslína innan bæjarmarka Garðabæjar að svo stöddu.“

Málsnúmer 2310197

10

Drög að samningi Garðabæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2024-2025.

Í samningnum kemur fram að markmið hans er að þróa og markaðssetja áfangastaðinn í heild og virkja samstarf og samtal milli Garðabæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins á samningstímabilinu.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Málsnúmer 2310140

11

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi verkefnið Römpum upp Ísland, dags. 02.10.23

Í tilkynningunni er vakin athygli á að á stjórnarfundi RUÍ sem haldinn var 19. september 2023 hafi verið tekin ákvörðun um að bjóða hinu opinbera, ríki og sveitarfélögum samstarf um gerð rampa við húsnæði í þeirra eigu.

Málsnúmer 2310208

12

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál, dags. 10.10.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2310254

13

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028, 315. mál, dags. 12.10.23.

Í tillögunni kemur fram að lagt er til að ráðist verði í breikkun og lagfæringar á Flóttamannaveginum (Vífilsstaðavegur - Kaldárselsvegur) áður en hægt er að flytja veghald hans yfir til Garðabæjar og Hafnarfjarðar verði það niðurstaða samráðs við sveitarfélögin.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda Alþingi umsögn um málið og koma á framfæri sjónarmiðum Garðabæjar um málið.

Málsnúmer 2310258

14

Erindi Bændasamtaka Íslands varðandi flokkun landbúnaðarlands með tilliti til hæfni til ræktunar, dags. 12.10.23.

Í erindinu er vakin athygli á leiðbeiningum um flokkun landbúnaðarlands og jafnframt farið fram á upplýsingar hvort flokkun hafi verið gerð í sveitarfélaginu samkvæmt leiðbeiningunum.

Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar umhverfissviðs.

Málsnúmer 2310257

15

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2024, dags. 12.10.23.

Lagt fram bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2024. Áætlað framlag Garðabæjar er kr. 202.855.000.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.

Málsnúmer 2310248

16

Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna skotæfingasvæðis á Álfsnesi.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2310240

17

Bréf Ríkislögreglustjóra varðandi könnun á stöðu sveitarfélags árið 2023 til að gera hættumat og viðbragðsáætlun, dags. 05.10.23.

Í bréfinu kemur fram að til að kanna áfallaþol sveitarfélaga eru sveitarfélög beðin um að svara könnun um stöðu sveitarfélaga árið 2023 til að gera hættumat og viðbragðsáætlun.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara könnuninni.

Málsnúmer 2310268

18

Bréf aðstandenda Kvennaverkfallsins 2023 um kvennaverkfall þann 24. október.

Bæjarráð tekur undir þau meginmarkmið kvennaverkfalls að hefðbundin kvennastörf, jafnt launuð sem ólaunuð, skuli meta að verðleikum. Stjórnendur hjá Garðabæ hafa verið hvattir til að huga að skipulag á starfsemi stofnana bæjarins geti verið með þeim hætti að sem að sem flestar konur og kvár geti tekið þátt í baráttudeginum 24. október, að hluta eða í heild.

Mikilvægt er að þess verð gætt að nauðsynlegri almannaþjónustu verði sinnt og að öryggi og heilsu fólks sé ekki stofnað í hættu. Jafnframt er mikilvægt að upplýsa þjónustuþega og viðskiptamenn bæjarins um mögulegar skerðingar á þjónustu.

Málsnúmer 2212136

19

Staða framkvæmda við endurbætur og viðhald á skólahúsnæði.

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir framkvæmdir við endurbætur og viðhald á skólahúsnæði þar sem unnið hefur verið að viðgerðum vegna rakaskemmda. Gerð var grein fyrir framkvæmdum í einstaka skólahúsnæði og farið yfir helstu verkþætti.

Lögð fram samantekt á kostnaði vegna framkvæmda og upplýst um að unnið er að gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna fjárheimilda.