Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 18.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
48. (2101). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 18. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu Hraunsholts eystra að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að Hraunhólum 18 til austurs vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við einbýlishúsið.
Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna og skoðast tillagan því samþykkt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
14. (929). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Hraunhóla 18. Grenndarkynna skal eigendum Hraunhóla 16, 19, 20, 21 og 23.“ (Mál nr. 2310034)
Bæjarráð Garðabæjar
04
39. (2092). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Hraunhóla 18. Grenndarkynna skal eigendum Hraunhóla 16, 19, 20, 21 og 23.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að Hraunhólum 18 til austurs vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við einbýlishúsið.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hraunhóla 16,19,20, 21 og 23.