Beint í efni

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholt vegna lóða við Þorraholt.

Málsnúmer 2305398

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (929). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða fjölbýlishúsalóða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir.
Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna var til 11. september 2023. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir. Skiplagsnefnd leggur til að taka tillit til athugasemda og gera eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu. Fellt er út ákvæði um heimild til að hafa hluta fjölbýlishússins á lóðinni við Þorraholt 7 fimm hæðir. Skilmálar fyrir suðurhluta og miðhluta lóðarinnar verða óbreyttir eða 4. hæðir eins og gildandi skipulag gerir ráð fyrir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2305398)

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (2092). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða fjölbýlishúsalóða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir.

Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna var til 11. september 2023. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir. Skiplagsnefnd leggur til að taka tillit til athugasemda og gera eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu. Fellt er út ákvæði um heimild til að hafa hluta fjölbýlishússins á lóðinni við Þorraholt 7 fimm hæðir. Skilmálar fyrir suðurhluta og miðhluta lóðarinnar verða óbreyttir eða 4. hæðir eins og gildandi skipulag gerir ráð fyrir.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir.
Tillagan var í auglýsingu frá 27.júlí til 11.september sl.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafi Sigurður Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic arkitektum gerðu grein fyrir fundi með íbúum við Háholt sem hafa gert athugasemdir.
Skipulagsnefnd telur að innsendar athugasemdir gefi tilefni til þess að komið sé til móts við þær og leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að 5. hæðin á tveimur húshlutum að Þorraholti 7 verði felld út. (miðbygging og syðsta bygging)
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni auglýsingu. Tvö erindi með athugasemdum hafa borist. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Bæjarráð Garðabæjar

05

26. (2079). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Þá er einnig gert ráð fyrir að hámarkshæð hluti byggingar hækki úr 4 hæðum í 5 hæðir.

Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.11 Íb geti verið 5 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurhluta sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir..
Við skoðun hefur komið í ljós að ósamræmi er við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 og hefur bæjarráð afturkallað deiliskipulagsbreytinguna sem búið var að samþykkja að vísa í auglýsingu.
Ósamræmi við aðalskipulagsákvæði felst í því að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.11 Íb sé að hámarki 4 hæðir.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til auglýsingar að nýju í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og skal hún auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa á landnotkunarreit 4.11 Íb geti verið 5 hæðir auk þess sem töflum með áætluðum íbúðafjölda í greinargerð rammahluta aðalskipulags verði breytt.

Bæjarráð Garðabæjar

07

25. (2078). fundur

Í minnisblaði kemur fram að tillaga í samþykktu deiliskipulagi sem leyfir að fjölbýlishús við Þorraholt 7, 13 og 19 megi vera 5 hæðir er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags fyrir svæðið þar sem fram kemur að hámarkshæð húsa sé 4 hæðir.

Bæjarráð samþykkir að draga til baka auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt fari úr 220 í 236 og hæðir fjölbýlishúsa við Þorraholt 7, 13 og 19 hækki úr 4 hæðum í 5 hæðir . Bæjarráð felur skipulagstjóra að leggja fyrir skipulagsnefnd tillögu um breytingu á rammahluta aðalskipulags sem heimili að fjölbýlishúsin verði 5. hæðir og samhliða verði auglýst að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða og heimili viðbótarhæð húsa við Þorraholt 7, 13 og 19.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

8. (923). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt fjölgi úr 220 í 236. (Mál nr. 2305398)

Bæjarráð Garðabæjar

09

21. (2074. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt fjölgi úr 220 í 236.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til íbúðarbyggðar við Þorraholt. Sigurður Hallgrímsson og Birkir Árnason hjá Nordic-arkitektum gerðu grein fyrir tillögunni.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 220 íbúðum í 236.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.