25. (2078). fundur
25. (2078). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
27.06.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Stella Stefánsdóttir - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Sunna Stefánsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2212064
01
Víkurgata 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svanhvíti Heklu Ólafsdóttur, kt. 090481-5179, leyfi til að stækka svalir og breyta skipulagi á einbýlishúsi í byggingu að Víkurgötu 21.
Málsnúmer 2302671
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Í minnisblaði kemur fram að tillaga í samþykktu deiliskipulagi sem leyfir að fjölbýlishús að sunnanverðu við Vorbraut megi vera 4 hæðir er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags fyrir svæðið þar sem fram kemur að hámarkshæð húsa sé 3 hæðir.
Bæjarráð samþykkir að falla frá tillögu um viðbótarhæð fjölbýlishúsa að sunnanverðu við Vorbraut. Fjölbýlishúsin verða áfram 3 hæðir eins og fram kemur í rammahluta aðalskipulags. Bæjarráð felur skipulagstjóra að leggja fyrir skipulagsnefnd tillögu um breytingu á rammahluta aðalskipulags sem heimili að fjölbýlishúsin verði 4. hæðir og samhliða verði auglýst að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem geri ráð fyrir að hámarkshæð húsa að sunnanverðu við Vorbraut verði 4 hæðir.
Málsnúmer 2305398
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Í minnisblaði kemur fram að tillaga í samþykktu deiliskipulagi sem leyfir að fjölbýlishús við Þorraholt 7, 13 og 19 megi vera 5 hæðir er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags fyrir svæðið þar sem fram kemur að hámarkshæð húsa sé 4 hæðir.
Bæjarráð samþykkir að draga til baka auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt fari úr 220 í 236 og hæðir fjölbýlishúsa við Þorraholt 7, 13 og 19 hækki úr 4 hæðum í 5 hæðir . Bæjarráð felur skipulagstjóra að leggja fyrir skipulagsnefnd tillögu um breytingu á rammahluta aðalskipulags sem heimili að fjölbýlishúsin verði 5. hæðir og samhliða verði auglýst að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða og heimili viðbótarhæð húsa við Þorraholt 7, 13 og 19.
Málsnúmer 2306254
04
Afgreiðsla fjölskylduráðs varðandi endurskoðun og samræmingu húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu fjölskylduráðs á tillögu um endurskoðun og samræmingu húsaleigu félags leiguhúsnæðis í eigu Garðabæjar.
Tillagan gerir ráð fyrir að við útreikning leiguverðs í félagslegu húsnæði í eigu Garðabæjar verði miðað við ákveðið fastagjald á íbúð kr. 70.000 auk fermetraverðs kr. 1.100 en með því er tryggt aukið jafnræði og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur félagslegs leiguhúsnæðis í eigu Garðabæjar. Báðar fjárhæðir skulu taka mið af breytingum á vísitölu neysluverðs.
Málsnúmer 2003121
05
Bréf Megins lögmannsstofu varðandi lóð Álftaness Café, dags. 14.06.23.
Í bréfinu er farið fram á að Garðabær leysi til sín lóð Álftanes Café en um er að ræða eignarlóð sem er víkjandi samkvæmt deiliskipulag sem gildir fyrir miðsvæði Álftaness.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
Málsnúmer 2306417
06
Tilkynning frá Strætó bs. varðandi breytingu á leið 23 - Álftanes, dags. 19.06.23.
Í tilkynningunni kemur fram að lagt er til að gera breytingar á pöntunarþjónustu á leið 23 sem felst í því að farþegar hringja eingöngu í sérstakt þjónustunúmer hjá þjónustuveri Strætó í stað þess að nú er einnig hægt að hringja í Hreyfil. Þá er lagt til að allar ferðir um Jörvaveg verði farnar samkvæmt pöntunarþjónustu þannig að ekki verði farið um Jörfaveg ef engin pöntun berst.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur Strætó bs. um breytingar á pöntunarþjónustu á leið 23 Ásgarður - Álftanes.
Á fundinum kom fram fyrirspurn um að fá yfirlit yfir nýtingu á leiðum 22 Ásgarður - Urriaðaholt og 23 Ásgarður - Álftanes.
Málsnúmer 2306048
07
Bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kröfu um stöðvun framkvæmda við viðbyggingu að Bakkaflöt 5.
Í niðurstöðu úrskurðarins kemur fram að kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda er hafnað en jafnframt er tekið fram að framkvæmdaraðli beri áhættu af úrslitum kærumálsins kjósi hann að halda framkvæmdum áfram áður en endanleg niðurstaða málsins liggi fyrir.
Málsnúmer 2208837
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Ég er - ferðir ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í golfskála Golfklúbbsins Odds.
Umsagnarbeiðnin var áður á dagskrá bæjarráðs 6. september 2022 og var þá bókað að bæjarráð geri ekki athugasemdir við að Ég er - ferðum ehf., kt. 471014-0600 verði veitt rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í golfskála Golfklúbbsins Odds. Lögð er fram umsókn með nýjum teikningum.
Bæjarráð staðfestir fyrri bókun í málinu.
Málsnúmer 2301459
09
Tilkynning frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu varðandi auglýsingu eftir styrkjum til fráveituframkvæmda, dags. 13.06.23.
Í tilkynningunni kemur fram að opnað hefur verið fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur er til 1. september 2023.
Sviðsstjóri umhverfissviðs upplýsti að hafinn er undirbúningur að því að sækja um styrki til fráveituverkefna hjá Garðabæ.
Málsnúmer 2301453
10
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 9/6 ´23.
Fundargerðin er lögð fram og rædd.
Málsnúmer 2303053
11
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 6/6 og 16/6 ´23.
Fundargerðirnar eru lagðar fram og ræddar.
Málsnúmer 2305390
12
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 19/6 ´23.
Fundargerðin er lögð fram og rædd.