Beint í efni

Afgreiðsla fjölskylduráðs varðandi endurskoðun og samræmingu húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis.

Málsnúmer 2306254

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

25. (2078). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu fjölskylduráðs á tillögu um endurskoðun og samræmingu húsaleigu félags leiguhúsnæðis í eigu Garðabæjar.

Tillagan gerir ráð fyrir að við útreikning leiguverðs í félagslegu húsnæði í eigu Garðabæjar verði miðað við ákveðið fastagjald á íbúð kr. 70.000 auk fermetraverðs kr. 1.100 en með því er tryggt aukið jafnræði og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur félagslegs leiguhúsnæðis í eigu Garðabæjar. Báðar fjárhæðir skulu taka mið af breytingum á vísitölu neysluverðs.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

6. fundur

Tillögur að endurskoðun og samræming húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ 2023 lagðar fram. Núverandi verklagi við ákvörðun á fjárhæð húsaleigu félagslegra leiguíbúða sem eru teknar til notkunar er ábótavant með tilliti til janfræðissjónarmiða. Starfsfólk fjölskyldusviðs hefur unnið að því að móta tillögur að settum reglum sem yrði beitt við útreikning á húsaleigu allra almennra félagslegra leiguíbúða í sveitarfélaginu. Við þessa vinnu var litið til útreiknings nágrannasveitarfélaga á húsaleigu félagslegra leiguíbúða. Starfsmenn fjölskyldusviðs leggja fyrir ráðið fyrstu drög að tveimur tillögum við útfærslu endurskoðunarinnar.

Fyrir fundinum lá tillaga fjölskyldusviðs að endurskoðun og samræmingu húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ 2023. Tillagan snýr að reglum til útreiknings á húsaleigu allra almennra félagslegra leiguíbúða í sveitarfélaginu. Við vinnu fjölskyldusviðs var horft til framkvæmdar Mosfellsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar og Kópavogsbæjar um útreikning á húsaleigu félagslegra leiguíbúða.
Fjölskylduráð fellst á tillögu fjölskyldusviðs um útreikning leiguverðs í félagslegu húsnæði þar sem miðað er við ákveðið fastagjald á íbúð, kr. 70.000 auk fermetraverðs, kr. 1.100 og telur að tillagan feli í sér aukið jafnræði og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur félagslegs leiguhúnæðis í Garðabæ. Báðar fjárhæðir skulu taka mið af breytingum á vísitölu neysluverðs. Fjölskylduráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.